Ýmislegt um sundlaugar
Sundlaugar heimsóttar (53)
-
Álftaneslaug
-
Árbæjarlaug
-
Ásgarðslaug
-
Ásvallalaug
-
Borg Grímsnesi
-
Breiðholtslaug
-
Dalslaug
-
Grafarvogslaug
-
Heiðarbær
-
Jaðarsbakkalaug Akranesi
-
Lágafellslaug
-
Laugardalslaug
-
Neslaug Árnesi
-
Reykholtslaug/ Íþróttamiðstöðin í Reykholti
-
Sælingsdalslaug
-
Salalaug
-
Selárlaug
-
Seltjarnarneslaug
-
Skeiðalaug
-
Stefánslaug Neskaupstað
-
Suðurbæjarlaug
-
Sundhöll Hafnarfjarðar
-
Sundhöll Reykjavíkur
-
Sundhöll Selfoss
-
Sundhöll Seyðisfjarðar
-
Sundlaug Akureyrar
-
Sundlaug Bláskógabyggðar Laugarvatni
-
Sundlaug Djúpavogs
-
Sundlaug Egilsstaða
-
Sundlaug Eskifjarðar
-
Sundlaug Grundarfjarðar
-
Sundlaug Hafnar í Hornafriði
-
Sundlaug Hofsóss
-
Sundlaug Húsavíkur
-
Sundlaug Laugum Þingeyjarsveit
-
Sundlaug Kópavogs
-
Sundlaug Ólafsfjarðar
-
Sundlaug Sauðárkróks
-
Sundlaug Siglufjarðar
-
Sundlaug Stykkishólms
-
Sundlaugin Blönduósi
-
Sundlaugin Borgarnesi
-
Sundlaugin Flúðum
-
Sundlaugin Hellu
-
Sundlaugin Hólmavík
-
Sundlaugin Hvammstanga
-
Sundlaugin Hvolsvelli
-
Sundlaugin Kirkjubæjarklaustri
-
Sundlaugin Laugalandi
-
Sundlaugin Laugaskarði
-
Sundlaugin Laugum Sælingsdal
-
Sundlaugin Vík
-
Varmárlaug
-
Vesturbæjarlaug
Uppáhalds laugar Reykjavíkur (2019)
-
Laugardalslaug
-
Sundhöll Reykjavíkur
-
Breiðholtslaug
-
Dalslaug*
-
Grafarvogslaug
-
Vesturbæjarlaug
-
Árbæjarlaug
*Dalslaug bættist við 2022
Ýmsar kríteríur sem sundlaugar eru dæmdar eftir
-
Hvað á að gera við skó; skólhillur, pokar fyrir skó
-
Flísar á sturtusvæði
-
Sundlaugarbakkinn, malbik, flísar, hellur, annað hversu þægilegt. Hversu þægilegt er að ganga á bakkanum
-
Almennt hreinlæti
-
Sýnileiki starfsmanna
-
Skilti – sérstök efni á skiltum
-
Tungumál á almennum skiltum
-
Skápar
-
Sturtur
-
Rennibrautir
-
Turnar
-
“Þvo á sér fætur” vatnið við þurrksvæði
Hringferð um sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu 17. sept. 2019
Fyrir nokkru komst ég að þeirri niðurstöðu að um 98% af öllum sundferðum sem ég hef farið hafa verið farnar í skólasundlaugina í Breiðagerðisskóla og í Laugardalslaug. Því var ákveðið að fara í hringferð um allar almenningssundlaugar á höfuðborgarsvæðinu. Heimsóttar voru 16 laugar, hófst ferðin í Laugardal og lauk henni í dag á sama stað. Laugarnar eru jafn fjölbreyttar og þær eru margar og hef ég komist að mjög mörgu um sundlaugar.
-Ég hef tekið eftir því að sundlaugar elska útprentuð plöstuð A-4 blöð. En það mjög misjafnt hverju laugarnar vilja koma á framfæri á þessum blöðum. Árbæjarlaugin vill að maður viti að hún taki enga ábyrgð á skóm í skóhillunni(örugglega um 20 stk bara við kvennaklefann). Grafarvogslaug vill að maður viti að það sé STRANGLEGA bannað að neyta matar og drykkjar í búningsklefanum, að gestir sem ekki þvoi sér án sundfata verði gerðir brottrækir úr lauginni og með MÖRGUM upphrópunarmerkjum að maður skuli setja skóna í plast. Sundhöll Reykjavíkur vill ekki að maður viti neitt, flókið að finna leiðina að laugarsvæði og aftur í klefa.
–Sturtur: Verstu ýta á takka sturtuna er að finna í Árbænum, og þá bestu ýta á takka í Sundhöll Reykjavíkur. Versta sturta óháð gerð blöndunurtækja er í Ásvallalaug. Krúttlegasti klefinn er í Varmárlaug.
–Eftirlit: Eitt af því sem kom mér mest á óvart er hversu lítið eftirlit er í sturtuklefum( mikið eftirlit í Laugardal), en varð vör við eftirlit í Breiðholti, Grafarvogi, Vesturbæ, Garðabæ og Salalaug. Í Lágafellslaug varð ég ekki vör við neitt eftirlit yfirhöfuð, hvorki í klefa né á sundlauga- og rennibrautasvæðinu.
–Eftirlit: Mesta eftirlit á öllum sviðum í Grafarvogslaug; í afgreiðslu, við hlið, í klefa og við laugina.
–Rennibrautir: Besta rennibrautin er bláa brautin í Breiðholti.
–Sápa: Mesta ilmefnasápan er í sundlaug Garðabæjar.
–Pottanudd:Besta pottanuddið er í Sundhöll Hafnarfjarðar.
–Skápar: Furðulegustu skápanúmerin eru í Kópavogi þau byrja á bókstöfum.
–Vaðlaug: Skemmtilegasta vaðlaugin er á Álftanesi ( öldulögin alveg fín líka sko)
–Kaldur pottur: Skemmtilegasta útfærsla á köldum potti á Seltjarnarnesi. Þar gengur maður í gegnum pottinn. Hann er lítill, ílangur, gengið niður tröppur öðru megin og upp hinum meginn.
-Óstýrilátustu sundgestirnir voru í Lágafellslaug en sjálfssagt var það bara tilfallandi.
-Karlar tala um mjög ólík mál í pottunum í Garðabæ og í Laugardal.
– Niðurstaða: Mér finnst enn Laugardalslaugin best og verður hún sótt áfram en Breiðholtslaugin kannski spari.