Dagurinn byrjaði á sundi á Kirkjubæjarklaustri. Þar á fólk greinilega í basli með heitt vatn því það var hálf breitt yfir heitu pottana til að halda þeim heitum. Það var samt 15 stiga hiti og sól. Eftir sundið var haldið rakleiðis austur með stuttum stoppum á Skeiðarársandi og Jökulsárlóni. Tjölduðum á Höfn í roki sem var smá áskorun. Eftir tjöldun vorum við svöng og ákváðum að rölta og finna okkur léttan bita í bænum. Fundum götubita með pönnukökum með öllum mögulegum áleggjum. Því næst var að bera allt dótið í tjaldið og græja þar. Þar næst var svo annar og stærri göngutúr um bæinn. Það kom í ljós að það eru margir veitingastaðir á Höfn og greinilega mikið menningarlíf. Það væri auðveldlega hægt að vera hér í nokkra daga til að skoða allt hér. Við stoppuðum smá og nutum kvöldsólarinnar fyrir utan veitingastað við höfnina enda var búið að lægja og hlýtt úti. Næst var það svo aftur tjaldið og grillaðar pylsur. Eftir matinn var svo smá kvöldganga en síðan var það bara ró í tjaldinu og spilað Uno frameftir kvöldi. Þetta er eitt fjörugasta tjaldsvæði sem við höfum komið á, börn að leika sér mikill hlátur og gleði í kring alls staðar.
#block-yui_3_17_2_1_1653856293900_861 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid { margin-right: -20px; }
#block-yui_3_17_2_1_1653856293900_861 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid-slide .margin-wrapper { margin-right: 20px; margin-bottom: 20px; }





