Á ferð um landið 2021: Stopp fimm: Reyðarfjörður

Ákváðum að stoppa aðra nótt á Reyðarfirði til að geta skoðað eitthvað á Austfjörðum. Byrjuðum daginn í 17 stiga hita og sól og grilluðum beyglur með rjómaosti og laxi. Við vörðum svo deginum í sikk-sakki milli fjarða. Fyrsta stopp var Stöðvarfjörður og Steinasafn Petru skoðað. Það er alveg ótrúlegt hvað eru til margar flottar steintegundir á Íslandi. Næst var svo brunað á Neskaupstað. Þar fórum við í sund. Gunnjón synti og fór í rennibrautir á meðan ég naut sólarinnar. Næst var Safnahúsið þar eru til dæmis sýning með gömlum verkfærum og sjóáhöldum en líka eitt flottasta náttúrugripasafn sem ég hef séð. Mjög vel sett upp sýning með allskonar uppstoppuðum dýrum. Næst var svo Stríðsárasafnið á Reyðarfirði skoðað. Svo var það bara sólbað og bókalestur fyrir utan tjaldið fram að kvöldmat. Við ætluðum að vera fín og fá okkur smá hvítvín í sólinni en það hafði hitnað aðeins of mikið yfir daginn. Ég fékk ágæta æfingu í þolinmæði og umburðarlyndi þegar við fengum nágranna á tjaldsvæðið. Einhver á rísa bíl með risa hjólhýsi ákvað að planta sér alveg ofan í okkur þó að allt túnið væri laust. Viðkomandi er líka með sinn eiginn rafal til að rafmagna öll herlegheitin. Ég er kannski skrítin en ég kann betur við í útilegu fuglahljóð og lækjarnið en hljóðið úr rafal.

#block-yui_3_17_2_1_1653857661582_836 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid { margin-right: -20px; }
#block-yui_3_17_2_1_1653857661582_836 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid-slide .margin-wrapper { margin-right: 20px; margin-bottom: 20px; }

Leave a Reply

Discover more from Á ferð og flugi

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading