Byrjuðum daginn í sundi á Hólmavík. Næst var Galdrasafnið heimsótt. Þar skemmti Gunnjón sér vel og keypti bækur í minjagripaversluninni. Næst var svo haldið suður á bóginn. Við lentum í smá þoku í Bröttubrekku en það stóð ekki lengi og var lítið mál. Planið var að stoppa og tjalda í Borgarnesi. Okkur fannst viðeigandi að enda þessa hringferð þar, þar sem seinasta hringferð byrjaði þar. Veðrið var þó með smá stæla við okkur og ekki í samræmi við veðurspá. Það reyndist vera úrhelli í Borgarnesi og vorum við ekki alveg í stuði fyrir það og ákváðum þá bara að fara heim í staðinn.
_ _ _
Þetta er núna önnur hringferð okkar um landið. Það kemur mér enn á óvart að við séum fólk sem fer í útilegur og að við spjörum okkur í tjaldi og þyki þetta skemmtilegt.
Í þessari ferð var ekkert afgerandi best tjaldsvæði: eiginlega eru jöfn í fyrsta sæti Höfn í Hornafirði, Blönduós og Hólmavík.
Á Blönduósi er notast við Parka bókunarkerfið þar sem maður pantar á netinu. Búið er að skipta stöðunum upp í merkt stæði og þá er maður bara með sitt eigið hólf sem er mjög gott.
Að sama skapi er heldur ekki neitt tjaldsvæði afgerandi verst enda hafa allir staðir sína kosti og galla. En jöfn í neðsta sæti eru Tjaldsvæðið á Reyðarfirði og Tjaldsvæðið við Þórunnarstræti á Akureyri.
Tjaldsvæðið við Þórunnarstræti hefur þann mikla kost að það er í miðbæ Akureyrar og það er draumur að koma tjaldhælum niður þar. Aðstaðan er hrein og fín þrátt fyrir mikinn fólksfjölda. Gallinn er hinsvegar fólksfjöldinn og kraðakið á svæðinu. Allir svo þétt upp við hvern annan. Algjör sardínudós.
Tjaldsvæðið á Reyðarfirði hækkaði á listanum milli ára. Fyrst og fremst vegna þess að þar er búið að opna auka svæði og við gátum fengið smá pláss í kringum okkur. Hinsvegar völdu þó flestir að troða sér í sardínudósarstemmningu á aðalsvæðinu. Upphituðu klósettinu eru frekar viðbjóður en ef maður fer á gömlu með bara köldu vatni og engu rafmagni er þetta í lagi og eiginlega bara fínt
Sigurvegari Hringferð ár Uno 2021 er Gunnjón.
Gunnjón: 3.774
Úlfhildur: 3.381
Hann vann líka í fyrra en í fyrra vann hann með 1.000 stiga mun. Sigurinn nú er ekki alveg jafn afgerandi.
Nú er bara að koma tjaldsúlunum í viðgerð, taka upp vegahandbókina og skipuleggja næstu ferð hvenær sem hún verður. En við hlökkum til að ferðast aftur.
Það er nokkuð athyglisvert að ferðast um landið og gista á tjaldvæðum.
– Í fyrsta lagi: Við erum oftar en ekki eina fólkið í tjaldi. Ég held jafnvel að það hafi verið fleiri í tjaldi í fyrra en í ár. Það eru miklar augngotur sem við fáum og horft og starað á okkur eins og við séum einhver viðundur. Það eru dæmi um að fólk standi og stari á okkur á meðan við erum að tjalda.
– Í öðru lagi: Tjaldsvæða hópurinn á Facebook er mjög gagnlegur. Þar sér maður hvaða svæði eru vinsælust og getur maður þá forðast þau. Ef það er spurt mjög oft um hvernig staðan sé og hvort laust sé í rafmagn á ákveðnum svæðum vitum við að það sé ekki staður fyrir okkur.
– í þriðja lagi. Það eru mun fleiri að ferðast núna en í fyrra og miklu fleiri í stórum húsbílum og stórum hjólhýsum sem verður til þess að erfiðara er að fá pláss. Stærstu bílarnir og hjólhýsin taka alveg mjög mikið pláss með öllum aukahlutum og stórum bílum. Fólk plantar líka stóru tækjunum sínum svo þétt saman að það varla hægt að ganga á milli.
– Í fjórða lagi: Það er einhver neikvæðni og togstreita milli hópa á tjaldvæðum sem ég varð ekki vör við í fyrra. Ég er auðvitað algjörlega á því að skilja eigi að tjöld og húsbíla/hjólhýsi þetta tvennt á ekki saman. En síðan er togstreita milli þeirra sem eru vanir að ferðast og þeirra sem keyptu sér húsbíl/hjólhýsi bara vegna þess að það kemst ekki til sólarlanda í heimsfaraldri. Seinni hópurinn virðist vera eitthvað fyrir fyrri hópnum. Og fyrri hópurinn bíður spenntur eftir því að fólkið í seinni hópnum komist aftur til sólarlandanna sinna og missi áhugann á ferðalögum innanlands.
#block-yui_3_17_2_1_1653865086581_735 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid { margin-right: -20px; }
#block-yui_3_17_2_1_1653865086581_735 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid-slide .margin-wrapper { margin-right: 20px; margin-bottom: 20px; }




Leave a Reply