Norðurlöndin: tuttugastaogsjötta stopp: Hirtshals

Það er ósköp fátt búið að gerast í dag. Síðasti dagurinn á meginlandinu í bili og fyrst rigningardagurin. Það væri vægt til orða tekið að segja að það sé rigning í dag. Himnarnir hafa verið að hrynja, vægast sagt. Þvílíkt er úrhellið búið að vera.

Tjaldsvæðið í Vammen er þannig að maður þarf að skilja bílinn eftir fyrir utan tjaldsvæðið og bera hluti á milli, sem er ekki svo slæmt öllu jafnan. En við getum sagt ykkur það að það er ekki gaman í grenjandi rigningu. Til mikillar mildi minnkaði regnið þó aðeins rétt á meðan við pökkuðum tjaldinu sjálfu.

Allt sem okkur langaði að gera í dag krafðist útiveru, við hættum þó við það og fórum að skoða hvaða söfn gætu verið áhugaverð. Við fundum mörg áhugaverð söfn en þau eru að sjálfsögðu lokuð á mánudögum. Niðurstaðan varð þá að fara í verslunarmiðstöð í Álaborg. Þar röltum við um, skoðuðum í vægast sagt stórri Bilka verslun sem er eins og Hagkaup í Skeifunni á öllum mögulegum sterum. Mjög yfirþyrmandi. Það fæst allt þarna og mikið af því. Við höfum aldrei áður séð jafn mikið remúlaði samankomið á einum stað.

Á þessum tímapunkti vorum við farin að hugsa að kannski ættum við að reyna að finna gistingu innandyra og þá hófst mikil leit að gistingu. Við fengum okkur hamborgara á skyndibitastaðnum Carl ‘s jr sem var mikið betri en borgararnir á hipsterastaðnum í gær. Gunnjón átti áhugaverð tölvupóstsamskipti við eina gistiheimilið sem átti laust herbergi. Við ákváðum þó að taka það ekki og bara ríða á vaðið og tjalda, við áttum jú bókað á tjaldsvæðinu í Hirtshals. Þegar við komum út úr verslunarmiðstöðinni var búið að stytta upp og drifum við okkur þá af stað til Hirtshals. Tjaldsvæðið í Hirtshals er mikið betra en ég hafði gert mér vonir um, sjálfsagt út af miður skemmtilegri reynslu af höfninni í Hirtshals þegar við vorum hér síðast. Við settum upp tjaldið á 18 mínútum, en það er aðeins meira maus að setja upp blautt tjald. Við náðum jafnvel að sitja úti í smá stund áður en tók að rigna. Núna sitjum við bara inni í tjaldinu og hlustum á ofsarigninguna, hún er það hávær að við getum rétt svo talað saman. Við sitjum þó skraufaþurr enda í eðaltjaldi.

Orð sem hefur mikið verið notað í þessari ferð er reiðilegt og að hitta þetta sé reiðilegt. En það kom til að inni á karlaklósetti í Norrænu kom maður inn á næsta bás, slengdi upp hurðinni og einhvern veginn pissaði reiðilega. Rigningin í dag er reiðileg, það rignir reiðilega.

Discover more from Á ferð og flugi

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading