Dagurinn byrjaði í leti og rólegheitum. Sólin skein skært og var sólbað og morgunmatur fyrir hádegi áður en tjaldinu var pakkað, nú loksins þurru.
Ætlunin var að hafa algjöran letidag, pakka saman, keyra svo á annað tjaldsvæði og hanga svo í sólinni, lesa, spila, bara almennt hangs. Það fór þó ekki alveg þannig. Við erum núna stödd í Helsingjalandi. Við byrjuðum að skoða Helsingjagarð. Helsingjagarðar eru tegund sveitabæjum sem einkenna þetta svæði og eru á heimsminjaskrá Unesco. Sá sem við heimsóttum var með safni um vesturfara og sagði sögu Erikjansenista sem var 1500 manna sértrúarsöfnuður sem höfnuðu boðskap Lúthers á 19. öld og fóru til Vesturheims. Annar hluti safnsins er svo einskonar byggðasafn sem fræðir um Helsingjagarðana, en þeir eru garðar því bæjarhúsin eru öll í hring og til verður garður í miðjunni. Eitt af einkennum þeirra er hvernig húsin er skreytt innandyra. Það voru fín herbergi sem voru svo fín að þau voru aldrei notuð nema við sérstaklega sérstök tilefni, eins og til dæmis brúðkaup. Ekki einu sinni jólin voru nógu sérstök.
Í einu húsinu var líka sýning tengd vinsælum sænskum myndasögum um elginn Helga sem reynir að leika á veiðimenn. Búið var að skera út allar helstu persónur sagnanna úr tré, mála þær og stilla þeim upp í skógarumhverfi. Hvorugt okkar var kunnugt myndasögunum áður þannig að við botnuðum takmarkað í þessu en þótti þetta skemmtilegt enga síður.
Eftir safnið vorum við að íhuga næstu skref og þá rakst ég á safn tileinkað Jim Reeves, Jim Reeves Museum, í næsta nágrenni. Hvorugt okkar er sérstaklega miklir Jim Reeves aðdáendur en við ákváðum að kíkja samt og að þetta gæti verið áhugavert, svona eins og þegar við fórum í Memphis Mansion án þess að vera Elvis aðdáendur. Við áttum ekki alveg von á því sem gerðist á safninu. En þarna fær maður leiðsögn með eiganda safnsins um sýninguna sem er í þremur herbergjum. Hann er greinilega mikill aðdáandi og lifir Jim Reeves, hann nefndi son sinn Jim. Eigandinn heitir Björn Herlin og safnið hans er eina Jim Reeves safnið í öllum heiminum. Hann hefur safnað ýmsum munum úr eigu Jim Reeves og hlutum tengdum honum. Það er gaman að sjá mann með greinilega ástríðu fyrir því sem hann sýslar með, tala um það. Hann er líka með smá horn tileinkað syni sínum Jim Herlin en sá smíðar gítara og hefur víst sérsmíðað gítar fyrir Keith Richards. Það er líka smá horn tileinkað hollenskum söngvara sem heitir Hans og söng Jim Reeves lög á hollensku. Þetta var allt hið sérstakasta og útfyrir þægindarammann fyrir tvo introverta Íslendinga að vera komin í þessar aðstæður. Maðurinn endaði líka á að segja við okkur: þarna upplifðuð þið eitthvað sérstakt, sem er alveg rétt.
Ljósmyndun var bönnuð á safninu þannig að engar myndir þaðan fylgja þessu bloggi og lesendur þurfa bara að nota ímyndunaraflið til að sjá fyrir sér heilu herbergin þar sem hver ferdesímetri er þakinn einhverju sem tengist Jim Reeves.
Efir Jim Reeves var svo að koma okkur á tjaldsvæði dagsins. Við komum á tjaldsvæðið um 20 mínútur yfir sex. Við ætluðum bara að fara að hanga í kvöldsólinni fyrir utan tjaldið, klára bloggið og spila svo smá og borða. Ég var rétt byrjuð að skrifa bloggið þegar sænskur maður vatt sér upp að okkur og spurði okkur hvaðan við værum á ensku. Við svöruðum og hann hélt svo aftur sína leið í hjólhýsið sitt og við heyrðum hann endurtaka allt sem við höfðum sagt við hann á sænsku við konuna sína. Ég var svo á bólakafi í skrifum um Jim Reeves safnið þegar maðurinn snýr aftur og býður okkur að koma og spila yatzy með þeim og gin og tónik. Við þáðum boðið og áður en við vissum vorum við sest vandræðalega við borð hjá þessu fólki fyrir utan hjólhýsið þeirra. Á þessum tímapunkti var orðið of vandræðalegt að viðurkenna að við tölum alveg sænsku þannig að öll samtöl fóru fram á ensku. Aftur verulega út fyrir þægindarammann, en þetta endaði sem mjög kósý kvöldstund með góðum drykk og spili, þau þurftu að útskýra fyrir okkur reglurnar í yatzy. Þau höfðu mikinn áhuga á þessu ferðalagi okkar og Íslandi þannig að umræður okkar voru að mestu um ferðalög sem var mjög gaman.
Nú erum við hinsvegar komin aftur í tjaldið okkar og dagur sem átti að vera letidagur varð langur og viðburðaríkur.



























Leave a Reply