Á ferð um landið 2020: Stopp þrjú: Vatnsnes og Skagafjörður.

Í þetta sinn var gist á Illugastöðum á Vatnsnesi, um 30 mínútur frá Hvammstanga. Sund á Hvammstanga, þar er ein versta sturta sem ég hef komist í tæri við. Hún er alveg á pari við sturtuna í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Að öðru leiti er sundlaugin á Hvammstanga mjög fín. Kaupfélag Vestur Húnvetninga gat selt mér nærbol sem engri verslun í Kringlunni tókst. Næst var það Skagafjörður sem var skoðaður. Þar sáum við Víðimýrarkirkju sem er elsta varðveitta torfkirkja landsins frá 1834. Hún er ennþá sóknarkirkja! Næst var það Reykjafoss og svo Stóru-Akrar en þar byggði og bjó Skúli Magnússon landfógeti 1745.

#block-yui_3_17_2_1_1653850649075_2567 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid { margin-right: -20px; }
#block-yui_3_17_2_1_1653850649075_2567 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid-slide .margin-wrapper { margin-right: 20px; margin-bottom: 20px; }

Discover more from Á ferð og flugi

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading