Gistum á Tjaldsvæði Fjallabyggðar við Stóra Bola á Siglufirði. Þar er hress tjaldvörður sem er mjög annt um að fá fólk yfir á Ólafsfjörð. Það er auglýst að hægt sé að borga fyrir tjaldsvæðið á Ólafsfirði og að þeir sem sem noti tjaldsvæðið á Ólafsfirði fái líka frítt í sund þar, en ekkert um hvernig greitt er fyrir svæðið á Sigló. Allt til að lokka fólk yfir. En jæja tjaldvörðurinn sagði að eiginlega vildu engir vera á Ólafsfirði en allir hrúgist á svæðin tvö á Siglufirði og þau væru gjarnan full. Við mættum frekar seint í bæinn og vorum glorsoltin Við gerðumst svo rosalega bjartsýn og héldum að við gætum borðað á marakóska veitingastaðnum en nei þar er vikulöng bið eftir borði. Þannig að við röltum yfir á Torgið en þar var allt troðfullt. Enduðum á að bíða eftir borði á Kaffi Rauðku, en þar er að finna með bestu pizzum á landinu. Þar varð uppákoma þegar einn viðskiptavinur var með svo miklar óspektir að honum var vísað út og kalla þurfti á lögreglu. Næsta dag var svo sund og heimsókn á Síldarminjasafnið og mannlífið á Sigló skoðað nánar, enda mikið um að vera og sjá að gera.
Í dag létum við svo slag standa og fórum á Ólafsfjörð, þar er fín sundlaug, en sturtan er svona ýta á takka en sturtan endist aðeins í 10 sekúndur sem er ansi stutt. Annað er eiginlega ekki á Ólafsfirði. Ég skil mjög vel að fólk velji frekar mannlífið á Siglufirði.
Næst var svo Dalvík þar lentum við óvænt á byggðasafninu sem er mjög skemmtilegt safn. Þar er meðal annars sýning um íslenskar konur í 100 ár, með fókus á störf þeirra meðfram því að vera húsmæður.