Í byrjun dags gengum við inn í þjónustuhúsið í Skaftafelli og báðum um að fá að borga fyrir nóttina, þar sem enginn hafi komið að rukka okkur. Afgreiðslumanneskjan varð hálf hissa að einhver kæmi sjálfviljugur til að borga fyrir þjónustu. Við erum sennilega skrítið fólk. Næsta stopp var sundlaugin á Kirkjubæjarklaustri en þar var búið að loka lauginni vegna fjöldatakmarkanna og bið eftir því að komast ofan í. Við ákváðum þá að bruna til Víkur og prófa alræmdu sundlaugina þar. Ég verð að segja að ég fann ekkert að hreinlætinu og sturturnar voru passlega heitar. Næst kíktum við á Skógarfoss og við ætluðum að kíkja á Seljalandsfoss en fannst 700 kr. ansi bratt fyrir að leggja í stæði þannig að við hættum við það. Þannig að þá vara bara brunað í gegnum suðurland á Flúðir en þar vorum við bjartsýn og héldum að við gætum fengið borð án þess að panta á Minilik veitingastaðnum, en þar var allt uppbókað. En jæja þá var það bara að flýta sér í bæinn og splæst í steik á Vitabar í staðinn.
– – –
Þessi ferð var mjög athyglisverð að mörgu leyti.
Fyrir það fyrsta teljumst við Gunnjón seint til útivistafólks og mjög ólíkt okkur að fara í útilegur. Satt að segja hafði ég efasemdir um að okkur tækist að fara í hringferð og gista í tjaldi og ná að fara allan hringinn. Ég bjóst við að við mundum gefast upp og snúa við á einhverjum tímapunkti. En okkur tókst það!
-Í öðru lagi: Það eru rosalega fáir í tjöldum. Íslendingar tjalda ekki! Fólk byrjaði ítrekað að tala ensku við okkur þegar það sá að við vorum með tjald. Svo þegar þjóðernið uppgötvaðist tóku við augngotur og fólk starði á okkur eins og við værum viðundur.
-Í þriðja lagi: Það kom mér á óvart hvað það var auðvelt að fá pláss á stæðum og fá pláss í rafmagn. En þar hjálpar líklegast að við erum með tjald og rafmagn ekki nauðsyn en kostur. Það var bara á tveimur stöðum sem við komumst ekki í rafmagn og 10 metra rafmagnssnúran okkar var alltaf meira en nógu löng. Það hjálpaði líka að vera í tjaldsvæða hópnum á facebook og sjá hvaða stæði eru vinsælust þar og sleppa því að fara á þau.
-í fjórða lagi: Mörg tjaldsvæði virðast ekki gera ráð fyrir fólki í tjöldum heldur bara fólki í húsbílum. Jörðin er sumstaðar eitt allsherjar grjót svo mikið að maður gæti alveg eins reynt að stinga tjaldhæl ofan í klett. Svo er frábært þegar svæði hafa tjöld aðgreind frá öðrum gistieiningum.
Tjaldsvæði sem kom mest á óvart: Tjaldsvæðið á Akureyri við Þórunnarstræti kom mjög á óvart, fín aðstaða, flötin hentar mjög fyrir tjöld. Staðsetning góð, beint við sundlaugina og stutt í miðbæinn. Það mætti samt aðskilja tjöld frá restinni.
Versta tjaldsvæðið: Tjalsvæðið á Fáskrúðsfirði, með öllu ómögulegt að tjalda þar.
Besta sveitalaugin: Laugar í Sælingsdal
Besta innanbæjarlaugin: Sundlaug Akureyrar
Vinningshafi Uno-bikarsins 2020: Gunnjón með 4.738 stig á móti 3.704 stigum hjá mér. Það var spilað Uno á hverju kvöldi allan hringinn og verður endurtekið á næsta ári, því við ætlum sko í aðra hringferð með tjaldið næsta sumar. Þá ætlum við að fara suðurleiðina og skoða austurlandið nánar.
#block-yui_3_17_2_1_1653853083627_2333 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid { margin-right: -20px; }
#block-yui_3_17_2_1_1653853083627_2333 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid-slide .margin-wrapper { margin-right: 20px; margin-bottom: 20px; }



