Á ferð um landið 2020: Austurland og suðausturland

Dagurinn byrjaði á rúnti frá Reyðarfirði til að fara í sund á Eskifirði. Þar held ég sé ein besta laug landsins. Svo voru firðirnir keyrðir suður. Það er mikil fegurð á austfjörðum. Við fórum svo að fossinum Beljanda. Þar á eftir var brunað að Jökulsárlóni, þar voru nánast engir ferðamenn, örfáir Þjóðverjar og Danir bara. Næst var að finna næturstað. Við ákváðum að veðja á Skaftafell þó það sé mjög vinsæll staður og brakandi blíða. Fyrst leist okkur ekkert á blikuna þegar við komum í Skaftafell, bíll við bíl og mjög þröngt á þingi og engin tjöld sjáanleg. En þar sem ég hafði heyrt að það væri sér svæði fyrir tjöld þarna þá leituðum við áfram og fundum fjórar hálftómar flatir ætlaðar fyrir tjöld. Eftir að hafa valið okkur stað og tjaldað ákváðum við að fara og reyndum að finna tjaldvörð til að borga, engan slíkan fundum við en fundum annan inngang inn á svæðið annan en þann sem við komum inn um þar sem stóð að svæðinu hefði verið lokað vegna fjöldatakmarkana og að maður ætti að borga áður en maður kæmi sér fyrir. Við tók panik yfir að við þyrftum að taka niður tjaldið og fara annað. En þá rakst Gunnjón á starfsmann sem sagði að það væri verið að reka fólk út af svæðinu en við værum örugg um að fá að vera þar sem húsbílum er vísað út fyrst. Við tók svo kósý kvöld í blíðunni.

#block-yui_3_17_2_1_1653852498124_2614 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid { margin-right: -20px; }
#block-yui_3_17_2_1_1653852498124_2614 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid-slide .margin-wrapper { margin-right: 20px; margin-bottom: 20px; }

Discover more from Á ferð og flugi

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading