Það var ögn undarlegt að sofa undir raunverulegu þaki í fyrsta sinn í langan tíma. Það var líka sjóðheitt inni í stúkunni í nótt því það loftar talsvert verr um timburkofa en tjald. Samt ágætlega notalegt og aðstaðan er betri en við bjuggumst við með bæði ísskáp og eldunarhellu. Við héldum að við þyrftum að skipta um stúku fyrir kvöldið en starfsfólkið á tjaldsvæðinu græjaði málin þannig að við fengum að halda sama gististað. Við mælum almennt með tjaldsvæðinu Ängby Camping fyrir ódýrt borgarfrí í Stokkhólmi, þó eru sturturnar af lélegri toganum, en virka þó vel, og nauðsynlegt er að koma með eigin handsápu fyrir salernusferðir eða handþvott.
Við borðuðum morgunmat á Joe and the Juice við Sveavägen í miðbæ Stokkhólms. Fengum okkur samlokur en það vakti furðu okkar að hinir flokkunaróðu og umhverfisvænu Svíar setja sínar Joe and the Juice samlokur í mun fleiri óþarfa umbúðir en tíðkast heima á Íslandi.
Svo héldum við í ráðhús Stokkhólms en á leiðinni komum við í Stokkhólms Serie & Skivhandel þar sem Gunnjón keypti sér gamla Marvel Drakúla myndasögu og tölublað af Fangoria hrollvekju tímaritinu.
Í ráðhúsinu rétt náðum við að kaupa miða í tæka tíð í leiðsögn um húsið. Ráðhúsið í Stokkhólmi er mun yngra en það virðist vera utan, frá ekki nema 99 ára, en það er einmitt hugmyndin. Arkitektinn vildi búa til hús sem virtist vera mun eldra en það var. Ráðhúsið er frekar magnaður staður með fleira en einu herbergi sem gerir mann agndofa með fegurð sinni. Þar ber auðvitað helst að nefna bláa salinn þar sem kvöldverður nóbelsverðlaunahafa er haldinn sem er alls ekkert blár því arkitektinn ákvað á síðustu stundu að múrsteinarnir væru fallegri hráir og ómálaðir. Annað eftirminnilegt herbergi úr ráðhúsinu er sjálfur borgarráðssalurinn þar sem daglegt starf borgarstjórnar fer fram en þar mætast tveir fagurfræðilegir heimar annarsvegar er aðalfundarrýmið frekar stílhreint með veggjum gerðum úr timburlistum og strekktu hvítu efni til að lágmarka bergmál og veita góða hljóðvist en þegar litið er upp blasir við gríðarlega hátt og fornfálegt norrænt loft sem myndi sóma sér vel í miðalda kastala. Hápunkturinn er svo auðvitað gylltisalurinn þar sem hver einasti desímetri af veggnum er skreyttur með myndum í býzönskum stíl úr fögrum mósaíkflísum, mörgum hverjum úr gulli. Sá salur er algerlega yfirþyrmandi fagur.
Eftir heimsóknina í ráðhúsið fórum við á flakk um Gamla Stan, elsta hverfi borgarinnar. Keyptum meðal annars Shining borðspil í Science Fiction Bokhandlen, Nexus þeirra Svía, og borðuðum kvöldverð á stað sem heitir Krónan.
Svo gerðum við okkur ferð á Södermalm í leit að stað sem við hrökkluðumst af fyrir fjórum árum vegna ásóknar annarra Íslendinga. Við mundum ekki hvað staðurinn heitir en fundum hann fyrir lok og komust að því að hann er systurstaður staðar sem við fundum og fórum á á Sveavägen í gær. Hluti af keðju með lauslegu vestra þema en tónlistin á staðnum er af einhverri ástæðu aðalega 20 ára gamalt popp.






