Norðurlöndin: fyrsta stopp: Hólar

Norðurlöndin: fyrsta stopp: Hólar

Það er nú svosem ekki mikið að segja um daginn í dag. Þessi fyrsti dagur ferðalags hefur gengið langt um betur en í fyrra. Upphaflega planið var að fara suðurleiðina austur og var kvíði yfir öðru kaosi á Höfn í Hornafirði kominn á kreik. Gul viðvörun og stormur á suð-og suðausturlandi kom okkur þó hjá því og var ferðinni þá heitið norðurleiðina. Við fengum frábært og ljúft og þurrt veður alla leiðina, en auðvitað þurftum við að taka rigninguna með okkur. Það byrjaði að rigna um leið og við keyrðum inn á tjaldsvæðið, sem betur fer þó er enginn vindur.

Við vorum smá kjánar með GPS tækið, það hafði sett sig á sumartíma og við tókum ekki eftir því fyrr en við komum á leiðarenda þegar samkvæmt klukkunni í tækinu var klukkutími eftir en samt bara 5 kílómetrar eftir. Við keyrðum því bara 4 tíma en ekki 5.

Núna sitjum við í kósý inni í tjaldi á Hólum í Hjaltadal og vonum að rigningunni fari að slota bráðlega. Við vitum annars ekki alveg hvað við ætlum að gera varðandi mat, við erum náttúrulega ekki með neitt gas fyrir grillið enda má ekki taka gas með í Norrænu. Planið var að grilla pylsur á einnota grilli en hversu vel það á eftir á virka í rigningunni á eftir að koma ljós.

Discover more from Á ferð og flugi

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading