Nú er komið að því. Áður en við lögðum af stað í ferðina okkar um Norðurlöndin í fyrra, reyndum við að kynna okkur Norrænu eins mikið og við gátum enda vissum við ekkert við hverju við ættum að búast og mjög forvitin um skipið. Síða Smyril-line er reyndar mjög góð að mörgu leyti en veitti okkur samt ekki þær upplýsingar sem okkur vanhagaði um. Mjög fáir hafa gert myndbönd á YouTubue um Norrænu, fyrir utan nokkra eldri þjóðverðja sem tóku aðallega myndir af eiginkonum sínum. Við ákváðum því að bæta úr stöðunni og gera okkar eigin myndband á ensku til að fræða fólk í sömu stöðu.
Hér er það myndband, næstum ári síðar https://youtu.be/iftbhtmdEBA
