Norðurlöndin: 25. stopp: Hanstholm (aftur)

Bærinn er Hanstholm er lítill bær sem vill ósköp mikið vera stór bær á Norður-Jótlandi. Hanstholm er bærinn sem átti að verða stór en hefur lent í hverri óheppninni á fætur annarri, fyrir utan það að hér er ein stærsta og mikilvægasta fiskihöfn Danmerkur. Hanstholm bauð okkur í morgun upp á glampandi sól og bongóblíðu og sáu tengdaforeldrar til þess að við fengjum góðan morgunmat og kaffi og te úti í sólinni.

Eftir morgunmat héldum við svo út í áttina að Álaborg og þar rétt fyrir utan borgina fórum við á mjög flott víkingasafn sem er við stóran haug og grafreit. Á safninu er ekki bara finna fróðleik og fornmuni bæði úr grafreitnum og þorpum sem lágu í grennd hans heldur er líka ítarleg sýning um sögu svæðisins allt frá steinöld til víkingaaldar. Norður Jótland var víst einkar ríkt af tinnustein á steinöld og framleiddi svo mikið af tinnurýtingum að þeir urðu mikil útflutningsvara til svæða sem voru ekki svo heppin að búa yfir þessari auðlind. Þegar steinöld leið undir lok og grjóthnífar voru ekki mikið þarfaþing skipti svæðið svo um gír og varð miðstöð fyrir allskonar kaupmennsku og víkingalæti.

Eftir safnið fórum við svo í stóra verslunarmiðstöð í Álaborg, það er meira að segja í nafninu, Ålborg storcenter. Þetta er verslunarmiðstöð örugglega stærri en Kringlan, H&Mið er með meira úrval af einhverju sem maður getur hugsað sér en H&M í Kringlunni og svo er þarna risa stór Bilka verslun sem selur allt mögulegt; matvörur, föt, heimilshluti, tæknidót og eiginlega bara allt sem hugann gæti girnt. Við keyptum samt aðallega föt. Gunnjón keypti nýjan jakka, bol og skirtu. Ég var í leit að flottum sumarkjól en fann því miður engan sem mér leist vel á en keypti þó tvo síðerma boli til að sofa í í útilegum á Íslandi.

Það tekur um 1 klukkutíma og 20 mínútur að keyra milli Álaborgar og Hanstholm en eftir verslunarferðina var aftur haldið til Hanstholm. Við komum í tæka til fyrir útsendingu á úrslitum í Tour de France. Gestur tengdapabbi var snöggur að setja okkur antisportistana inn í þessa hjólreiðakeppni og hvernig hún gróflega virkar og um að danskur maður væri sigurstranglegur til að vinna. Við höfðum því á Tour de France. Joan (stjúp)tengdamamma eldaði svo handa okkur ekta góðan heimilismat, hakkebuff með lauk, brúnni sósu og kartöflum. Svo gott og sérstaklega gott að fá danskan mat sem maður þekkir sem venjulegan íslenskan heimilismat í Danmörku. Reyndar er allt sem við fáum að borða í Hanstholm svakalega gott og held ég að sé algjörlega ómögulegt að fara svangur eða þyrstur út frá þeim hjónum Gesti og Joan. Restin af kvöldinu fór svo í kósýheit og hygge yfir Tour de France og sáum við hinn danska Jónas Vingegaard vinna keppnina. Hann er víst 26 ára og er héðan frá svæðinu í kringum Hanstholm. Ég verð að segja að þetta var skemmtileg íþróttaupplifun. Tour de France er alveg sem notalegt hægsjónvarp(slow tv) þar til á lokametrunum þegar olnbogaskot og svakalegar kapphjólreiðar taka við. Ég viðurkenni að ég gæti alveg hugsað mér að kveikja á Tour de France í framtíðinni alla vega í smá stund.

Á morgun er svo ferðinni heitið aftur til Hirtshals sem kaldhæðnislega á smá þátt í óheppni Hanstholm. En meira um það á morgun.

Discover more from Á ferð og flugi

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading