Eftir regn í nótt fengum við þá gleði að pakka saman blautu tjaldi í morgun þegar við vorum að yfirgefa Hanstholm. Það gekk þó alveg ágætlega að pakka niður.
Í dag var förinni semsagt heitið til Hirtshals á norður Jótlandi þangað sem Norræna kemur í höfn. Við heimsóttum stórt sædýrasafn sem er í Hirtshals en þar er sjáfarlifinu í Norðursjó gerð sérstök skil. Þetta er gífurlega stór og skemmtilegt safn. Þarna er að sjá allskonar fiska í stórum fiskabúrum, hákarla(sem eru jú fiskar líka), landseli og útseli. Selirnir búa í stórri selalaug sem er djúp og grunn á köflum og er gestum boðið að sjá selina ofan frá við flæðarmálið, í miðju vatninu og frá göngum sem liggja undir grunnum hluta af laugarsvæðinu. Botninn er svo hulinn með steinum og þörungum, en selirnir hafa líka steina og strönd til að vera á. Svo er líka eitt risastórt oceanium búr eða öllu heldur laug þar sem við sáum kafara fóðra fiskana og mata tunglfisk. En tunglfiskar eru skuggalega stórir. Fólki í Norðursjó eru líka gerð skil en farið yfir allskonar tengt sjómennsku, hvernig veiðarfæri eru notuð og bátar og fatnaður sjómanna. Þarna er líka allskonar skemmtilegt sem fólk má leika sér og prófa sjálft, tölvuspil, spurningar og úti í garði er búið að setja up trillu þar sem maður getur staðið úti á dekki og prófað að stíga ölduna í mismunandi miklum vindi en gólfið undir manni hreifst eins og maður væri úti á vatni. Það er áhugavert að öllum skiltum er allur texti á dönsku, þýsku og ensku í þessari röð. En Danir og annað norrænt fólk var í yfirgnæfandi miklum minnihluta á þessu safni, það var urmull af Þjóðverjum.
Eftir sædýrin komum við svo okkur fyrir á tjaldsvæðinu í Hirtshals. Hér á meginlandinu eru undantekningarlaust afgreiðslur á tjaldsvæðum þar sem maður gerir fyrir sér og er alltaf með beðið um nafn, heimilsfang og símanúmer. Í afgreiðslunni tók á móti okkur mjög almennilegur Dani sem þegar hann uppgötvaði að við værum frá Reykjavík óskaði okkur góðrar ferðar á morgun. Íslendingar eiga víst ekki mörg önnur erindi til Hirtshals en Norrænu. Við komum okkur fyrir á tjaldsvæðinu í blússandi roki en náðum þó að reisa tjaldið alveg frekar hratt og vel og er þetta eiginlega bara með betri tjöldunum í þessari ferð þrátt fyrir vindinn. Mín reynsla af Hirtshals er að hér rignir og hér er fyrst og fremst rok.
Eins og ég hafði orð á í pistli gærdagsins á Hirtshals alveg smá lið í óheppni bæjarins Hanstholm. Hér áður fyrir stoppaði Norræna og fleiri ferjur og farþegaskip í Hanstholm sem færði bænum vissulega ýmsar tekjur og mannlíf. Verslunarmiðstöðin fylltist af Norðmönnum í dagsferð yfir sundið í verlsunarferðum til að versla hitt og þetta en þó auðvitað helst áfengi. En svo voru auðvitað líka margir ferðamenn sem stoppuðu við í bænum áður haldið var lengra inn í landið og auðvitað þeir sem voru að fara út með ferjunum. En svo var það um 2010 að Smyril-line og annað félag sem heitir Fjord line fóru frekar að sigla til Hirtshals. Mér skilst að það hafi verið stundum vandamál að það væri of vindasamt í Hanstholmhöfn og að ferjur hefðu stundum þurft að stoppa út fyrir höfnina til að bíða af sér veðrið í höfninni og þess vegna hafi ferjufyrirtækin flutt sig. Hanstholmbær var þó snöggur að laga þetta vandamál í höfninni og gerist þetta ekki lengur þar en þá voru félögin flutt í rokrassgatið Hirtshals og Hanstholm með fína höfn og áfram með ferjuaðstöðu sem enginn notar og frekar tóma verlsunarmiðstöð. Nú hef ég vissulega dvalið meira í Hanstholm en í Hirtshals en í þessi fjögur skipti sem ég hef komið til Hirtshals hefur alltaf verið rok, í Hanstholm hef ég líka upplifað rok en þó oftar mun skaplegra veður.


















