Norðurlöndin: 17. stopp: Överhörnäs/Örnsköldsvik

Annar rólegur dagur í dag. Við byrjuðum á afslappi í sólinni á tjaldsvæðinu. Annars vorum við á nornaslóðum í dag. Við byrjuðum á að fara á Nornasafnið í Prästmon. Þar er farið yfir sögu nornaofsókna og réttarhalda og norna- og galdrabrenna í Thorsåkerssókn árin 1674-75 en þá voru um 70 manns mest allt konur hálshöggnar og svo brenndar á báli. Þetta höfðu í sumum tilvikum verið konur sem höfðu kannski verið einhverskonar seiðkonur sem höfðu iðkað náttúrulækningar með eldgömlum uppskriftum. Auðvitað spunnust líka upp miklar tröllasögur um að jafnvel virðulegur húsmæður hefðu flogið á kústum á nornamessur á Blåkulla eyju og þar dansað við djöfulinn og tekið þátt í allskonar ólifnaði. Pyntingar voru svo óspart notaðar til að láta sakborninganna játa jafnvel fáránlegustu sögur.

Næst fórum við upp á Prästberget, en það er smá hæð þar sem nornabrennurnar fóru fram. Við vorum smá klaufar og fórum framhjá veginum sem liggur að hæðinni þannig að við fengum í staðinn fallegan bíltúr um sveitir Ångermanlands. Leiðin frá bílastæðinu er stutt og upp brekku í skógi. Á leiðinni upp eru krossar með nöfnum þess fólks sem var ranglega dæmt og myrt. Eftir upp á hæðinni er svo minnisvarði, steinn sem hefur verið reistur og rist á hann í minningu þeirra sem voru drepnir. Á hæðinni er líka skilti þar sem fólk er minnt á að þó að þetta sé fallegur staður þurfi að bera virðingu fyrir því fólki sem ranglega endaði líf sitt þarna og þetta sé ekki staður fyrir fíflagang eða grillveislur. Það er falleg ganga þarna upp.

Þetta er í fyrsta sinn sem við komum svona norðarlega í Svíþjóð, þetta er eins og heilt annað land, allt önnur Svíþjóð en maður hefur séð áður. Hér eru fjöll, þó ekki séu þau stór, hér eru firðir og víkur. Hér er náttúran allt öðruvísi en syðra í landinu. Hér er líka allur mögulegur iðnaður, við höfum til dæmis séð óteljandi margar sögunarmyllur. Hér er ögn minna að gera og sjá en syðra en náttúran er einstaklega fögur eiginlega hvert sem maður horfir. Það verður gaman að fara ennþá norðar eða fara nær landamærum Noregs. Hvert sem ferðin leiðir okkur.

Fleira gerðum við eiginlega ekki í dag. Við stoppuðum í Örnsköldsvik til að fá okkur að borða og finna okkur tjaldsvæði fyrir kvöldið. Við fundum tjaldsvæðið á Överhörnsnesi, það er með mjög góða dóma  á Google og hefur fengið verðlaun og viðurkenningar. Það hljómaði mjög vel. Við bókuðum pláss fyrir tjöld án rafmagns. Í bókunarferlinu kom fram að stæðin væru 8×8 metrar að stærð sem er meira en nóg fyrir tjöldin okkar sem eru 320x445cm og 260×479 cm. Þegar á staðinn var komið kom í ljós að við höfðum fengið stæði sem er í engum veruleika 8×8 metrar. Þetta er agnarsmár þríhyrningur á milli skurðar og malarstígs. Það var ekki séns í helvíti að við værum að fara koma fyrir tjaldi og bíl á þessu stæði. Við stóðum þarna í smá stund eins og illagerðir hlutir og horfðum í kringum okkur. Við sáum önnur pláss sem okkur fannst vera örlítið stærri og skárri, en það var ekki gott að segja hvort þau væru bókuð eða ekki. Við hugsuðum að við gætum mögulega troðið örlítið mjórra tjaldinu á stæðið. Við ákváðum að fara í afgreiðsluna og spyrja hvort við gætum skipt eða þá ef við gætum ekki skipt hvar við gætum lagt bílunum því það væri alveg út úr myndinni að koma tjaldi og bíl á þennan stað. Lausu stæðin reyndust vera bókuð og sáum við fólkið mæta stuttu á eftir okkur. Við fengum þá að leggja bílnum úti í kanti þar sem gert er ráð fyrir að gestir sem noti tjaldengið leggi. Tjaldengið er svo annar kapítuli. Þar hefðum við getað komið tjaldinu fyrir en það hefði verið talsverð kúnst að koma bílnum þangað þar sem það er hinum megin við skurð sem liggur bakvið röð af mjög rótgrónum húsbílum og vögnum. Í raun eru takmarkað hægt að komast á engið nema troða sér milli garðhúsgagna hjá langdvalarfólki á stæðinu eða fara lengri leiðina og hoppa yfir skurðinn.

Þetta væri sennilega yndislegt tjaldsvæði ef við værum ekki svona sérvitur að vera á stóru tjaldi, sem er þó samt ekki svo stórt. Við erum svo sem ekkert þjáð, við þurfum bara að eyða einni nóttu í smá þrengslum milli malar og mýfluguskurðarins mikla og svo höldum við á vit ævintýranna.

Leave a Reply

Discover more from Á ferð og flugi

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading