Það er ekki svo viðburðaríkur dagur í dag. Ég held ég hafi sjaldan verið jafn sveitt á ævinni og í dag. Það var strax orðið svo heitt í morgun að maður varð kófsveittur bara við það að sitja úti. Ég var rétt svo í föstum fasa eftir að hafa setið úti í smá stund.
Tjaldsvæðið Överhörnsnäs, við semsagt gistum þar í gærkvöldi og tjaldið okkar komst rétt svo fyrir á skringilega löguðum grasbletti. Við Gunnjón vorum ekki alveg 100% sátt i gær og skrifuðum því umsögn um tjaldsvæðið á Google Maps, nokkuð sem við gerum alls ekki oft. Við reyndum að vera eins sanngjörn í umsögn, enda var í raun ekkert að tjaldstæðinu heldur bara þessi mismunur um hvað stóð á heimasíðunni og svo í bókunarkerfinu. Á meðan við vorum að pakka kom svo annar eigandinn til okkur að spjalla. Þá hafði hann lesið umsögnina og vildi til við okkur um upplifun okkar. Við tók atburðarás sem ég hafði aldrei búist við. Maðurinn heitir Jens. Jens vill mjög greinilega veita framúrskarandi þjónustu og það er það sem hann gerir. Honum fannst þessi misskilningur afar leiðilegur og baðst afsökunar. Þessi litlu stæði við vatnið eru ný núna í sumar og það höfðu óvart farið rangar upplýsingar inn á Campcation sem er bókunarkerfið. Við áttum þarna mjög gott samtal. Hann sagði okkur að koma við í afgreiðslunni á leiðinni út og fá endurgreitt, því svona vöru vildi hann ekki selja. Hann vill selja vöru/þjónustu sem fólk vill kaupa og er ánægt með. Þegar við svo vorum búin að pakka tjaldinu og vorum sveittari en sveittustu sjoppuborgarar og vorum á leiðinni í sturtuna kom Jens aftur til okkar og rétti okkur umslag með endurgreiðlsunni í reiðuféi og smá kveðju og hann sagði okkur að kaupa eitthvað fallegt fyrir peninginn. Núna er hann búinn að mæli stæðin við vatnið, taka myndir af þeim og uppfæra síðuna, nú ætti ekkert að koma neinum á óvart. Ég hef aldrei vitað aðra eins þjónustu. Svona á að gera þetta. Ég auðvitað uppfærði umsögnina á Google. Jens og Matias á Överhörnäs Camping, þeir fá núna alveg fullt hús stiga fyrir einstaklinga fallegt og snyrtilegt tjaldsvæði. Allt svæðið er vel hirt og fallegt, þjónustuhúsin eru góð og hrein. Ég fór að bursta tennur um miðnætti og þá var Jens að þrífa sturtur og salerni. Þetta er allt til fyrirmyndar og þjónustan framúrskarandi. Ég vildi að fleiri fyritæki, eigendur og þjónustuaðilar væru svona með hlutina á hreinu, með metnað og tilbúnir til að veita þjónustu af alvöru 10/10
Af tjaldstæðinu héldum við að Ögeltjärnsbergi sem er rétt fyrir utan Örnsköldsvíkog fórum í smá fjallgöngu. Bergið er 91 metri að hæð á hæsta tindi og auðveld ganga þar upp. Ég var fyrst smá smeik við seinustu metrana upp. Mér fannst það aðeins of bratt en svo var þetta ekkert mál. Ég kannski bara tengi aðeins og mikið við ketti sem koma sér auðveldlega lengst upp í tré en komast svo ekki sjálfir aftur niður. Mér finnst alltaf mikið auðveldara að fara upp en niður. Efst uppi er svo undur fagurt útsýni yfir Botníuflóa. Þar eru bekkir og borð og grillsvæði og eldiviður til nota. Þar er líka skýli þar sem má gista og kamar. Ef maður væri alvöru útvistarmanneskja en ekki bara gervi málamyndaútivistarmanneskja væri þetta örugglega frábær staður til að fara á með lítið tjald og svefnpoka og gista. En þannig fólk erum við bara ekki. Það er líka tjörn þarna sem við skoðuðum. Tjörnin heitir Ögeltjärn, ég geri ráð fyrir að bjargið heiti eftir henni. Ögel er á íslensku iggla en það er víst einhversskonar vatnablóðsuga, hverrar tilvist ég vil helst ekki vita af.
Næst var svo að fá okkur að borða og ákveða næsta tjalsvæði. Við völdum First Camp Nydala/Umeå, og er í útjaðri Umeå. First Camp er rándýr keðja sem við reynum eftir fremsta megni að forðast. Þessi First Camp tjaldsvæði eru yfirleitt allt í lagi, en ekki mikið meira en það. Mörg þeirra eru með klúbba fyrir börn og unglinga til að stytta þeim stundir á meðan fullorðna fólkið sólbaðar sig. Stæði fyrir tjald með rafmagn er 700-750 sænskar krónur. Það eru 9-10 þúsund íslenskar. Við erum vön að greiða fyrir tjald pláss með rafmagni 300-420 sænskar og 250-300 kr. fyrir pláss án rafmagns. Hér greiðum við 350 kr. fyrir tjaldpláss án rafmagns og erum stödd rétt við ruslagámana og grávatnsræminguna. Þetta er eins mikil andstæða tjaldsvæðisins Överhörnäs og hugsast getur, en þetta var laust og virkar þó ekki sé það spennandi.





























Leave a Reply