Norðurlöndin: 41. stopp: Egilsstaðir

Það eru búnir að vera frekar tíðindalitlir en afar langir dagar. Ég slæ því hér tveimur dögum saman. Það var talsverður öldugangur framan af í ferðinni og á miðvikudagsmorgun vaggaði skipið, en síðan lægði þegar við komum að Hjaltlandseyjum. Það reyndist hvorki þörf á að stoppa í Noregi eða Hjaltlandseyjum en það var siglt sérstaklega hægt í gegnum ölduganginn. Eftir að ölduganginn lægði seinnipart miðvikudags var hægt að sigla hraðar, setja allar vélar í gang og fullt stím til Færeyja. Skipstjóranum tókst meira að segja að vinna upp þrjár klukkustundir af seinkun inni  bara frá Hjaltlandseyjum til Færeyja og svo aðeins meira til viðbótar á leið til Íslands. Stemmningin í þessari Norrænuferð var öðruvísi en í fyrri ferðum, veðrið og seinkunin hafði sitt að segja. Aldrei áður hef ég séð farþegana fylgjast jafn vel með og þagna þegar tilkynningar eru í kallkerfinu. Það voru auðvitað extra  mikilvægar upplýsingar í tilkynningunum og allir forvitnir um framhaldið. Annars fóru dagarnir hjá okkur í að spila, hangsa, pub-quiz og bingó. Við unnum ekkert í bingóinu en við lentum hinsvegar í öðru sæti í pub-quizinu og unnum sitthvorn drykkinn á barnum. Fimmtudagurinn var svo meira hangs. Við fórum í dýrindis morgunverðarhlaðborð með öllu mögulegu góðgæti. Eftir það settumst við niður í almannarými og horfðum þætti um gaura í lestarferðalögum. Lyklarnir í Norrænu eru þykkir pappamiðar með QR kóða sem er skannaður á hurðunum, þeir eru greinilega tímastilltir til að hætta að virka stuttu eftir að ferð er lokið. Við vorum auðvitað nokkuð á eftir áætlun en ekki hafði verið hugsað út í að framlengja virknina á lyklunum. Við læstumst því úti og þurftum að fara í afgreiðsluna en það var fljót afgreitt og ekkert mál.  Við höfðum ætlað okkur að fara aftur í bingó kl. 15 og svo fara í heitu sjópottana kl. 16. Hinsvegar var skyndilega tilkynnt að við myndum kom til Íslands kl 17 en ekki 18, þannig að ljóst var að við mundum ekki ná bæði bingói og heita pottinum. Við ákváðum því að sleppa bingóinu og fara frekar í pottinn kl. 15. Við náðum að sjá glitta í Ísland frá heitapottinum. Á tímabili í var reiknað með að við kæmum til Íslands klukkan um klukkan 23 á fimmtudaginn og þá ákváðum við að panta hótel og fundum eitt laust herbergi á Egilsstöðum og höfðum líka beðið um seint check in. Seina chekinið höfðum við síðan ekki þörf fyrir en það var samt fínt að gista innandyra.

Leave a Reply

Discover more from Á ferð og flugi

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading