Norðurlöndin: 40. stopp: Norræna

Norðurlöndin: 40. stopp: Norræna

Jæja.

Norræna kom til Hirtshals rétt fyrir eitt í gærkvöldi. Við fengum að fara um borð í kringum klukkan tvö að dönskum tíma. Við þurftum að bíða fram á gangi i kannski hálftíma áður en búið var að þrífa öll herbergi. Þegar við komum í káetuna okkar fórum við beint að sofa. Klukkan um þrjú var Gunnjón nærri því sofnaður en ég enn vakandi og átti undarlega erfitt með að sofna, einmitt þá kom skiptsjórinn í kallkerfið og sagði að brottför væri frestað og óljóst hvenær við færum af stað. Öldurnar væru nefnilega hátt í 11-12 metra háar sem væri óhentugt til sjóferða. Við sem sagt sváfum um borð í skipi í Hirtshalshöfn. Við vöknuðum og fórum á fætur að færeysku tíma um klukkan níu. Þá vorum við enn í höfn. Um hádegi kom svo skipstjórinn Pétur af Vollanum aftur í kallkerfið og upplýsti um að við gætum ekki lagt af stað fyrr en í fyrsta lagi kl. 18:00 að færeyskum tíma, sem er skipstíminn.

Dagurinn fór annars í að sitja í útsýnisbarnum Laterna Magica. Við höfum útsýni yfir norska ferju í við sama kæja. Við höfum varið deginum í að spila Skúrkaspilið sem ég keypti í Malmö, að því er virtist fyrir heilli eilífð síðan. Skúrkaspilið sem kostaðar 100 krónur sænskar reyndist vera hið allra skemmtilegasta þegar við vorum búin að átta okkur reglunum, sem var reyndar ekki erfitt verandi sænskutalandi. Skúrkaspilið er alfarið á sænsku og heitir Skurkarnas skurk. Það gengur eins og við má búast mikið út á svik og pretti og slagsmál. Við mælum heilshugar með. Okkur skilst að þetta sé byggt á vinsælum barnabókum.

Við fórum af stað um 17:58 og erum búin að vera siglandi síðan þá með þeim fyrirvara að við gætum þurft að stoppa í Noregi eða Hjaltlandseyjum. Búist var við 4-6 metra háum öldum og var skipstjórinn búinn að vara við miklum öldugangi. Þetta er ekki búið að vera neitt slæmt. Við erum auðvitað bæði með flæðandi sjómannsblóð í æðum, skipið rétt svo vaggar. Við höfum séð það verra. Við siglum samt hægar en gengur og gerist á þessum árstíma og því förum við hægar yfir. Sennilega komum við mjög seint heim en það er seinni tíma vandamál.

Leave a Reply

Discover more from Á ferð og flugi

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading