Núna var sett met í tjalduppsetningu. Auglýstur tjöldunartími á tjaldinu okkar er 15 mínútur en við höfum hingað til þurft um klukkutíma. En á Akureyri tókst okkur þetta á 16 mínútum. Helsta vandamálið hjá okkur er að jörðin er svo skrambi hörð að erfitt er að lemja tjaldhælana niður. Ég reikna að með að það sé vegna þess að það er fyrst og fremst reiknað með fólki í húsbílum og ferðavögnum hverskonar á tjaldsvæðum. Annars var grasagarðurinn skoðaður. Ég verð að segja að hann er mun fallegri og meira spennandi en sá í Reykjavík. Svo var kvöldmáltíð á Greifanum og einhver vafasamur bar heimsóttur í smá stund eftir mat. Í dag var svo sund í snarpakkaðri Sundlaug Akureyrar. Það var stanslaus röð í sturturnar og nánast engir skápar lausir. Þetta jafnast samt ekki á við sardínudósastemmninguna sem ég hef upplifað í Laugardalslaug þegar heita vatnið klárast í sturtunum og eina lausa plássið er í stóru aðal útilauginni. Gunnjón brosti út að eyrum eftir þrjár rennubrautarferðir á Akureyri. Næst var förinni heitið að Goðafossi og svo næst Dimmuborgir. Nú er gist í Reykjahverfi.
#block-yui_3_17_2_1_1653851385253_3304 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid { margin-right: -20px; }
#block-yui_3_17_2_1_1653851385253_3304 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid-slide .margin-wrapper { margin-right: 20px; margin-bottom: 20px; }





