Gist var í Heiðarbæ í Reykjahverfi. Þar er eitt af betri tjaldsvæðunum sem við höfum farið á í þessari ferð. Þar eru algjörlega aðskilin svæði fyrir tjöld og húsbíla, hjólhýsi og fellihýsi, sem er æði. Þarna var sem sagt samansafn af álíka gamaldags furðufuglum eins og okkur. Það var ekki mikið skoðað eða gert enda úrhelli á svæðinu. En við fórum í sundlaugina í Heiðarbæ, þar þarf maður að skrúfa frá jafnvel nokkrum sturtum til að fá heitt vatn í einni sturtu. Við kíktum á hverina undir Námafjalli og á Dettifoss. Í lok dags var svo ákveðið að stoppa einu sinni í innandyra gistingu á Egilsstöðum.
#block-yui_3_17_2_1_1653851793791_2582 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid { margin-right: -20px; }
#block-yui_3_17_2_1_1653851793791_2582 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid-slide .margin-wrapper { margin-right: 20px; margin-bottom: 20px; }





