Dagurinn byrjaður á frábæru gistiheimili í Fellabæ. Sundlaugin á Egilsstöðum var svo prófuð. Þar er nánast óþarfi að fara í guðubaðið því hitinn í sturtunum er svo mikill að klefinn fyllist af gufu. Svo heimsóttum við Hallormsstaðarskóg og fórum í góðan göngutúr. Svo ætluðum við upp að Hengifossi en gáfumst upp við Litlanesfoss haldandi að hann væri rétti fossinn. Ég þarf algjörlega að mastera stigvélina í ræktinni ég ætla einhvern tímann að sjá þennan foss. Svo var förinni heitið á Fáskrúðsfjörð. Þar fórum við á Franska safnið sem var mjög gaman. Fáskrúðsfjörður er líka mjög fallegur. Við ætluðum að tjalda þar í sól og blíðu en tjaldvæðið þar er eitt það ömurlegasta sem um getur og ætti ekki að kalla sig tjaldsvæði! Þar er jörðiðnsvo viðursyggilega hörð að tjaldhælar komast í allra mesta lagi 1 cm ofan í jörðina. Við rembdunst eins og rjúpan við staurinn þar til við gáfumst upp og fórum á Reyðarfjörð. Þar erum við á tjaldsvæði innan um eintóma húsbíla og ferðavagna með tilheyrandi bílahljóðum og hurðaskellingum og augngotum frá fólki sem horfir á okkur eins og við séum hinir mestu furðufuglar. Nú stendur Gunnjón loks við grillið að grilla dýrindis steik.
#block-yui_3_17_2_1_1653852129793_2573 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid { margin-right: -20px; }
#block-yui_3_17_2_1_1653852129793_2573 .sqs-gallery-block-grid .sqs-gallery-design-grid-slide .margin-wrapper { margin-right: 20px; margin-bottom: 20px; }



