Það voru bara 22 gráður í dag þegar við vöknuðum og vorum mjög þakklát fyrir að þurfa ekki að taka niður tjald í blússandi hita og vorum jafnvel bjartsýn á að veðurspá um 36 stiga hita væri ekki að ganga eftir.
Fyrir hádegi fórum við í heimsókn í höllina í Kalmar. Þar fengum við leiðsögn um konunglegu íbúðina í höllinni og kyrkjuna, eftir það skoðuðum við sjálf á eigin spýtur. Þarna koma við sögu þekktir félagar eins og Gustav Vasa og hans synir og allt fjölskyldudramað þeirra. Við vorum í um tvo tíma að skoða höllina. En af reynslu okkur af höllum undanfarnar vikur eru tveir tímar sá tími sem tekur að skoða höll. Eftir kastalann röltum við um miðbæ Kalmar og fengum okkur að borða á taco stað í bænum.
Næst var förinni heitið á IKEA safnið í Älmhult í Smálöndunum. Þangað er um tveggja tíma akstur frá Kalmar. Þegar við settumst inn í bílinn sagði hitamælirinn í bílnum að það væri 32 gráður og fannst okkur það heitt. Þetta voru heitustu tveir tímar okkar í bíl. Þegar mest var sáum við 37 gráður á mælinum. En lengst af flakkaði hitinn milli 34 og 36 gráða. Við stoppuðum aðeins á leiðinni í Hovmantorp til að kæla okkur. Svalinn inni í matvöruversluninni var guðdómlegur og gerðum við innrás á drykkjarkælinn.
IKEA safnið var stórskemmtilegt. Þar er farið yfir hönnunarferlið á hlutum, ferlið á öryggiskröfum, þolprufunum, og prufum á efnum og litum. Þar er líka saga IKEA rakin, alveg frá stofnun til dagsins í dag. Saga IKEA bæklingsins er líka rakin. Ingvar Kamprad stofnaði IKEA 17 ára og seldi þá bara hitt og þetta sem honum datt í hug. Svo fann hann út að húsgögn væru málið. Í fyrsta vöruhúsinu sem var í Älmhult bókaði fólk tíma og fékk leiðsögn um rýmið og pantaði svo þær vörur sem það vildi fá. Þetta er mjög gagnvirkt safn og er fólk hvatt til að snerta, prófa og leika sér. Við náðum því miður samt ekki að skoða allt, þetta er stærra og skemmtilegra safn en við höfðum gert ráð fyrir. Við þurfum einn daginn, eins og með marga aðra staði, að fara aðra ferð til Älmhult og klára að skoða safnið almennilega.
Svo var að koma okkur á tjaldsvæði dagsins, sem er rétt fyrir utan lítinn bæ sem heitir Osby. Við vorum eldsnögg að koma tjaldinu upp, það tók í þetta sinn 13 mínútur en auglýstur tjöldunartimi er 17 mínútur. Á þessum tímapunkti var enn mjög heitt úti við bæði sveittari en sveittustu sjoppuborgarar, eftir tjöldunina. Þá var ekkert annað í stöðunni en að hoppa útí stöðuvatnið sem er beint við tjaldsvæðið og var það undursamlegt. Umrætt vatn er reyndar undarlega grunt, við fórum hátt í hundrað metra frá landi og þar var enn það stutt til botns að eina leiðin til að sökkva sér lengra en upp að mitti var að setjast á botninn. Við erum algjörlega orðnir baðaðar að hætti Svía og skiljum núna 100% hvers vegna Svíar eru með bað í vötnum á heilanum. Það er bara fátt annað jafn endurnærandi og frískandi.
Eftir að hafa svitnað meira en orð fá lýst, sennilega rann frá okkur meira vatn en jafnvel ofsafengnasta jökulhlaupi, bíðum við nú eftir þvottahúsinu á tjaldsvæðisins losni, en við eigum bókað þvottahúsið kl. 22.


















