Það er eiginlega ennþá minna að segja um daginn í dag en gærdaginn. Við byrjuðum daginn í rólegheitum á Húsavík, Gunnjón svaf smá út.
Eftir pökkun á tjaldi var tími fyrir sund. Við erum að vinna í að prófa nýjar laugar sem við höfum ekki farið í áður. Í dag varð okkur smá á í messunni og héldum að við værum að fara í nýja laug en áttuðum okkur þegar við komum á staðinn að við höfum komið þar áður. Hér kemur úrval örnefna á Íslandi til sögu. Sum örnefni eru algeng og ekki frumleg. Það heita of margir staðir Laugar. Við höfðum semsagt komið í sundlaugina Laugum áður. En það eru víst fleiri sundlaugar á öðrum Laugum.
Við tók akstur austur sem var ekki nema um tveir tímar og fjörtíu mínútur. Sem er sennilega helmingi styttra en við keyrðum í gær. Í dag voru þó akstursskilyrði örlítið verri. Rigning á Norðausturlandi og síðasta spölinn yfir Fjarðarheiði frá Egilstöðum til Seyðisfjarðar var þokan svo þykk að það sást varla í næstu stiku. Okkur tókst þó með klækindum að sleppa því að aka út af og komumst heil á áfangastað.
Í byrjun síðustu viku skoðaði ég fyrir forvitnissakir langtímaveðurspá fyrir Seyðisfjörð þá var spáin 0-3 gráður og rigning og ég byrjaði að panikka. Tjaldútilega við frostmark hljómar engan veginn eins og neitt sem ég vil taka þátt í. Ég fór þá að leita að öðrum gistimöguleikum. Eðli málsins samkvæmt er margt um manninn á Seyðisfirði degi fyrir Norrænubrottför, margir vilja vera mættir kvöldið áður enda fer skipið snemma að morgni. Ég bjóst ekki við að neitt væri laust. Í fyrstu fann ég bara gistingu í kringum 100.000 kr. fyrir nótina en svo datt ég á gistihús sem var með eitt herbergi laust fyrir 45.000 kr. Það var ákveðið að stökkva á það. Leitin hafði farið fram á booking.com en ég hef heyrt svo margar hræðilegar sögur um bókanir í gegnum slíkar miðlanir þannig að ég fór inn á heimasíðu gistihússins og bókaði beint. Það var reyndar þúsund krónum dýrara en hægt að afbóka án gjalds með stytti fyrirvara, sem hljómaði vel enda gæti veðurspáin alveg breyst. Veðurspáin hefur ekki breyst hér eru 5 gráður og rigning og við erum tékkuð inn á gistihúsið. Við komuna á gistihúsið tók á móti okkur maður sem virðist ekki fá marga íslenska viðskiptavini og virkaði frekar hissa. Af því ég hafði ekki bókað og greitt á booking.com fékk ég líka 6.000 kr. afslátt á gistingunni. Þetta er hið fínasta gistihús. Flott eldhús með setustofu þar sem er frítt kaffi meðal annars. Herbergið sjálft flott lika og rúmgott og við höfum sér baðherbergi. Útsýnið er líka flott. Ég er líka nokkuð viss um að húsið sem skipstjóri Norrænu notar til viðmiðs í innsiglingunni. Enn sem komið er er þetta hverrar krónu virði að sleppa við að tjalda í kulda og úrhelli.



Leave a Reply to Sigríður JónsdóttirCancel reply