Norðurlöndin: 29. stopp: Borås

Norðurlöndin: 29. stopp: Borås

Það verður ákaflega stutt frásögn í dag. Eftir að morgunmat og smá snurfus á hótelinu héldum við í Vigelund höggmyndagarðinn. Við gengum þar um umkringd urmul af ferðamönnum. Þetta er örugglega mesti ferðamannastaður sem við höfum farið á í þessari ferð. Garðurinn er fallegur og minnir á hallargarð. Svo eru listaverkin sjálf. Allskonar menn og fígúrur í glímu og svo smábörn inni á milli. Við vorum í garðinum í um klukkustund en hefðum örugglega verið lengur en hitinn var strax orðinn um 30 gráður þarna fyrir hádegið.

Annars fór dagurinn mikið til í akstur. Áfangastaður dagsins var eiginlega bærinn Kungsbacka rétt utan við Gautaborg. Í Kungsbacka er nefnilega verslunin Western Tack and Fashion en hún selur allskonar kúrekafatnað og hluti. Konurnar sem stofnuðu verslunina eru hestakonur og stunda frekar western reiðmennsku en hefðbundinn meiginlandsstíl. Ég biðst afsökunar, ég er ekki alveg með öll hestamennskuhugtök á hreinu. Þeim fannst vanta sárlega verslun á Norðurlöndunum með western reiðklæðnað og búnað og almennan western klæðnað. Þær stofnuðu því bara verslun. Nú er það önnur þeirra sem er með verslunina. Síðast þegar við fórum þarna gerðum við bæði stórinnkaup og bjuggumst við að sagan enduræki sig í dag. Búðin selur hin allra flottustu kúrekastígvel sem eru hugsuð sem alvöru vinnustígvél og ekki bara skraut. Þetta er alvöru. Því miður er eigandinn búinn að vera í basli með að fá sendingar afgreiddar í sumar frá birgja og er því lagerinn frekar tómur hjá henni, mest bara til óalgengari skóstærðir 45 og upp úr. Hvorugt okkar er með það stóra fætur að ekkert varð að stígvélakaupum í þetta sinn. Það kemur víst ný sending í næstu viku, það er víst aðeins of seint fyrir okkur. Við kaupum kannski bara af netsíðunni hjá þeim þegar við erum komin heim. Gunnjón fór þó ekki tómhentur heim heldur keypti hann sér Stetson herrailm og nýja sylgju á beltið sitt.

Nú erum við stödd á þeim stað í landinu sem er hvað mest ferðamennska meðal heimamanna, vesturströndinni; Tylösand, Lysekil og bara strandlengjan. Það gekk mjög erfiðlega að finna tjaldsvæði í dag og stefndi í annan Pizza Hut dag. Við fundum þó laust pláss á tjaldsvæðinu í Borås. Borås er í klukkutíma fjarlægð frá Kungsbacka. Þetta er risastórt tjaldsvæði en furðulega sjarmerandi miðað við stærðina. Hér er allt til alls, svaka ævintýraleiksvæði fyrir börn, veitingastaður og ég veit ekki og hvað og hvað. Dýragarðurinn í Borås er í 400 metra fjarlægð, mig grunar að dýragarðurinn og tjaldsvæðið séu að einhverju leiti samrekin eða í öllu falli í miklu samstarfi. Það er dýraþema hér. Stúkurnar heita eftir dýrategundum og styttur af útdauðum dýrum eins og loðfílum og risaeðlum skeyta svæðið. Í gegnum tjaldsvæðið rennur áin Viskan og er hægt að baða þar. Við auðvitað bursluðum og kældum okkur niður eftir tjöldun. Hvort einhver viska fáist úr því að baða sig í Viskunni er ekki gott að segja.

Leave a Reply

Discover more from Á ferð og flugi

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading