Við sváfum út í morgun. Við vorum greinilega bæði þreytt eftir svefnlitla fyrrinótt. Við vöknuðum um kl. níu. Við vorum líka heppin með tjaldsvæði í skugga.
Við tók rólegur dagur. Við fórum í pinball spilasalinn Pinball inn í Korsberga í Smálöndunum. Þetta er hinn allra flottasti pinball spilasalur með mörgum kössum. Bæði nýjum og gömlum. Salurinn er á þremur hæðum. Aðalhæðin er full af pinballspilum en inn á milli eru líka aðrir leikir eins og Guitar Hero, Mortal Kombat, og Sega Rally kappakstur. Það er líka PlayStation 5 og aðrar leikjatölvur. Á neðstu hæðinni eru svo elstu spilakassarnir sem eru held ég frá miðjum til loka 8. áratuginum. Gömlu eru flottir og gaman að spila í þeim. Brettin eru úr tré og máluð, ljósin eru einföld og bjöllurnar hljóma eins og dyrabjöllur eða skólabjöllur. Maður heyrir líka kúluna renna og maður finnur að kúlan rennur öðruvísi um borðin. Nýju eru nánast með tívolíljósasjói og allskonar hljóðum. Það er auðvelt að dáleiðast af öllum litríku ljósunum. Svo vaknar líka keppnisskapið í manni. Maður vill alltaf gera aftur og aftur. Stundum gengur vel og stundum gengur minna vel og þar sem maður sér stigin sem maður fær, vill maður alltaf prófa að gera betur. Borðið sem mér fannst skemmtilegast var leikur sem heitir Fish Tales frá 1992. Leikurinn, eins og nafnið gefur til kynna gengur út á að veiða fiska. Ég gat þar fengið hefnd gegn geddunni frá í gær. Þegar maður veiðir stóran fisk titrar allt borðið. Mér tókst einu sinni að fá 20 milljón stig fyrir að ná stórum fiski. Við vorum í tvo klukkutíma í spilasalnum og náðum að prófa ótal mismunandi kúlu- og tölvuspil.
Síðdegishádegismatur var á Pizzeriu í nálægum bæ. Það er um korters keyrsla þangað. Það var nokkuð heitt og ég var því með opin glugga. Nema hvað að á leiðinni ákvað heljarinnar stór fluga að enda líf sitt á gluggakarminum hjá mér í bílnum. Úr varð klessa á karminum og flugan barðist fyrir lífi sínu fyrir aftan bakið á mér. Ég hallaði mér fram þar til við stoppuðum fyrir utan veitingastaðinn og þá sáum við hvaða þetta hlussustór fluga, mun stærri en allir kollegar hennar á Íslandi, hún var enn suðandi þegar við fórum úr bílnum en virtist ekki vera upp á sitt besta. Pizzerian var hefðbundin á sænskan máta með allt of stórum og flóknum matseðli og allt í lagi pizzu.
Næsta stopp var matarinnkaup í bænum Växjö. Þar fékk burri líka langþráð bað. Það er flóknara að þvo bíl í Svíþjóð en á Íslandi. Við borguðum í sjálfsala og þurftum að velja fyrir hversu margar krónur við ætluðum að þvo. Það er erfitt að ákveða það þegar maður veit ekki hversu mikinn þvott maður fær fyrir hvaða upphæð. Við völdum 60 krónur. Við tók alsherjar prógram þar sem Gunnjón stökk á milli mismundandi litaðra slanga og baðaði bílinn. Burri fékk háþrýstiþvott, sjampó, skrúbb og skol. Síðan var hann byrjaður í einhverskonar vaxmeðferð en þá kláruðust 60 krónurnar. Hann kom alla vega hreinn út úr þessu.
Næst var ferð að gömlum haug í Ingelstad. Þar eru tveir haugar, annar minni og hinn stærri. Ekki er vitað hverjir eru þarna grafnir er mjög sennilega hafa þetta verið mikilmenni úr sveit þessari. Upp á stærri haugnum er reistur steinn og við hann hnöttur sem rist hefur verið í. Það er munstrið á hnettinum sem gefur helst til kynna að sá sem þarna er grafinn hafi verið mikilmenni í sínu samfélagi því munstrið er mjög vandað og flókið, það litla sem enn sést því veður og vindar hafa máð mikið af því út í gegnum aldanna rás. Fyrir neðan hauginn er hægt að skoða nýútskorna eftirlíkingu sem sýnir hversu flottur steininn hefur verið á sínum tíma.
Nú erum við komin fínt tjaldsvæði sem er mjög augljóslega Þjóðverjatjaldsvæði. Ég hef ekki heyrt neitt Norrænt mál talað í kringum okkur. Það er allt fullt á tjaldsvæðinu og ég við eru held ég bara ein af fjórum sem ekki hafa einhversskonar þýsku að móðurmáli. Hér er urmull af Þjóðverjum og svo Austurríkismönnum og Svisslendingum og Niðurlendingum. Ég hef séð tvo Svía og eina Dani. Nágrannar okkar á tjaldsvæðinu er par frá Niðurlöndum. Þau voru að basla með tjaldið sitt þegar við komum og voru enn að basla korteri seinna þegar við vorum búin að koma okkur fyrir og voru enn að basla 20 mínútum eftir það þegar við vorum búin að rannsaka aðstöðuna og kanna baðströndina og fá okkur ís. Mögulega er þetta fyrsta útilegan þeirra eða fyrsta sinn sem þau tjalda þessu tjaldi. Þau voru með ranga aðgerðaröð. Þetta er súlutjald og þau voru að reyna að reisa súlurnar án þess að hafa fest nokkurn hluta af tjaldinu við jörðina. Þetta gekk brösulega. Ég reyndi að horfa ekki en það var vandræðalegt þegar maðurinn starði á okkur koma okkar tjaldi upp án vandræða.


































Leave a Reply