Norðurlöndin: 34. stopp: Falsterbo

Norðurlöndin: 34. stopp: Falsterbo

Núna erum við smá farin að drepa tímann þar til tími er komin til að hitta Norrænu aftur í Hirtshals í næstu viku. Veðurspáin dregur mann líka smá niður. Það er spáð rigningu næstum alla dagana þar til við förum heim.  Við getum þó varla kvartað eftir 4-5 vikur af sól og blíðu, fyrir utan smá regn í Stokkhólmi og í Finnlandi. Í dag var sennilega seinasti dagurinn án rigningar.

Við ákváðum því að fara í dýragarðinn í Ystad, það er betra að nýta góða veðrið fyrir útiveru og gera frekar eitthvað innandyra þegar rignir. Þó Ystad sé ekki sérstaklega stór bær er dýragarðurinn þeirra nokkuð stór. Þar eru engin ljón, tígrisdýr eða fílar. Þarna eru þó margir flottir íbúar. Þarna er hægt að sjá framandi dýr eins og nokkrar tegundir af eitruðum froskum, flottar skjaldbökur og skrítinn förustaf, ólikuan þeim sem ég hef kynnst áður. Svíar kalla annars förustafi gangandi pinna, sem er skondið. Þarna eru líka dvergsvín, lamadýr, kameldýr, miniasnar, mini Shetlandspony sem eru minni en venjulegir Hjaltlandseyjapónýar. Það eru vallabíur og emúar sem voru flottir. Frændur þeirra strútarnir létu sig ekki heldur vanta og ekki heldur annar álika fugl sem heitir nandu. Við sáum líka nagdýr sem við höfðum ekki haft vitneskju áður sem kallast Mara. Mörur eru minni en Kabíbörur og eru í raun skyldari hérum en eru stærri en þeir. Mörur eru líka ein af fáum einkvænisspendýrum. Þær finna sér maka og lifa fjölskyldulífi með makanum til æviloka.

Uppúr fannst mér standa Villistígurinn en þar fær maður að fara inn hjá Alpökum og Núbískum geitum sem ganga alveg lausar um stórt opið svæði. Núbísku geiturnar standa mest upp úr. Aðrar eins mannblendnar lífverur eru vandfundnar. Þær eru stórar, nærri því tvöfalt stærri en íslenskar geitur. Núbískar geitur eru háfættar nærri því jafn háar og hundarnir Stóri Dani, ef einhver skildi hafa séð þannig hund(þeir eru stórir). Núbískar geitur (og Stóru-Danar) eru 80-90 metra háar. Þær eru með horn og það er smá skuggalegt að sjá svo hyrnt dýr nálgast mann, en svo vilja þær bara klapp, klór og knús. Mjög svo ljúfar og stórar geitur.

Þarna er líka að finna afrískan villikött sem kallast Servalköttur. Þessir kettir eru nokkuð líkir blettatígri en talsvert minni og með frekar langan háls og fætur. Svæðið þeirra í garðinum er gríðarstórt og víggirt. Servalkettir eru fyrst og fremst á ferð snemma á morgnana og seint á kvöldin en eru annars, eins og frændur þeirra húskettir, steinsofandi á einhverjum felustað. Á Serval svæðinu í garðinum er mikið af háu grasi svo að kisur hafi felustaði til að kúra á og því er mjög erfitt að koma auga á þessi dýr á þeim tíma sem við vorum þarna. Við teljum okkur þó hafa séð glitta í eyrun á einum ketti sem faldi sig í einum af áðurnefndum grassblettum.

Eftir nokkra klukkutíma af stórum dýrgarði, fengum við okkur að borða í dýagarðinum enda klukkan orðin 16 og við óborðuð síðan um klukkan 10. Ég fékk mér sænskar kjötbollur á kaffihúsi dýragarðsins. Gunnjón fékk sér jalapeno hamborgara. Ég held að þau hafi slátrað nautinu og/ eða sótt jalapenoið á suðrænar slóðir í rauntíma til að gera hamborgarann tilbúinn. Það tók það langan tima og ég búinn með megnið af mínum mat áður en Gunnjón fékk sinn mjög óskynduga skyndibita.

Við erum komin á tjaldsvæði í Falsterbo í Svíþjoð. Við erum komin svo nálægt Danmörku að við erum nærri því að vera þar en í Svíþjóð. Ég er til og með viss um að ég heyri í flugumferð á Kastrup.  Þetta tjaldsvæði er resort tjaldsvæði með allri mögulegri þjónustu. Þar á meðal er veitingastaður og bar. Það er ekki óalgengt hér í austurheimi að það séu veitingastaðir eða barir við tjalsvæði. Fyrr en í kvöld höfum við aldrei nýtt okkur þetta. Við fórum á barinn og engum okkur einn öl og svo gin/tónik og romm/kók. Það var stemmning, það var hljómsveit skipuð eldri borgurum sem sungu misþekkta slagara. Þetta var góð kvöldstund.

Leave a Reply

Discover more from Á ferð og flugi

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading