Norðurlöndin: 35. stopp: Sibbarp

Norðurlöndin: 35. stopp: Sibbarp

Hvar skal byrja. Þetta var langur dagur. Við ákváðum að taka smá borgar dag og skoða Malmö betur. Tjaldsvæði gærdagsins var líka bara um 40 mínútur frá borginni. Við byrjuðum í Möllevången hverfinu. Við lögðum í bílastæðahús þar. Aðkoman í bílastæðahúsið var smá spes. Það er í kjallara og er vægast sagt þverhnípt brekka ofan í það, svo mikið svo að framstuðarinn á bílnum snerti malbikið þegar við komum niður að hurðinni inn í húsið. Leiðin út er líka álíka brött og í beygju og hafði ég smá áhyggjur af því að bíllinn mundi ekki drífa upp. Vesen á þessum Svíum að þrengja svona að einkabílnum. Dagur B ætti kannski að fara að huga sinn gang yfir þessu þarna.  Annars var nú förinni heitið í búð sem Gunnjóni þótti ágætlega sennilegt að hann gæti fengið Hrafninn flýgur á Blu-ray en myndin er það vinsæl í Svíþjóð að hún hefur verið gefin út á DVD og Blu-ray hér en hefur ekki verið gefin út á Blu-ray á Íslandi. Við gengum dágóðan spotta í blíðviðri í búðina. Búðin átti ekki myndina. En búðin reyndist vera mikið stærri en við bjuggumst við. Þarna var stór deild með DVD og Blu-ray myndum og sjónvarpsþáttaröðum. Ég íhugaði að skella mér á sett með Skerjagarðslækninum, sænskum þáttum sem voru sýndir rétt fyrir aldamótin. Ég sleppti því enda eru þeir líka aðgengilegir aldeilis frítt á SVT Play. Hins vegar keypti ég McLeod’s Daughters eiginlega prequel mynd. McLeod’s Daughters eru ástralskir dramaþættir frá því kringum aldamótin, sem gerast í sveit í Ástralíu. Þetta er einn af mínum uppahaldsþáttum, en þeir voru aldrei sýndir á Íslandi. Ég kynntist þeim á Hallmark rásinni í Fjölvarpinu en þar var þetta sýnt. McLeod’s Daughters var hinsvegar sýnt í Svíþjóð og náði skiljanlega vinsældum. Þessi mynd kom út á undan þáttunum og er eiginlega svona pilot fyrir þættina sem höfundarnir framleiddu til að selja til sjónvarpsrásanna. Í myndinni eru aðrir leikarar og gerist myndin áður en þættir en þættirnir gerast. Ég sá þessa mynd fyrir langa löngu í litlum gæðum á netinu og er hún illfáanleg til sölu á netinu. En þarna var hún til á DVD. Í þessari búð er líka stór deild með teknimyndasögum, Gunnjóni keypti sér teiknimyndasögu. Þetta er samt eiginlega aðallega plötubúð. Það er fullt til af vínyl. Ég skoðaði lítið sem ekkert af plötunum enda taldi ég það vera of mikla freistingu.  Ég gæti fundið eitthvað sem mig langar í en ég treysti ekki alveg brothættum vínylplötum í snarpökkuðum bílnum.

Á leiðinni til baka úr búðinni stoppuðum við í Folkets Park sem er almenningsgarður. Þessi garður er stór og fallegur og virðist endalaust hægt að gera þarna. Það eru kaffihús og veitingastaðir. Það eru tónleikasvið, gosbrunnar, sull og buslaðstaða og alskonar leikvellir. Við sáum held ég einn af flottustu minigolfvöllum sem ég hef séð með frægum mannvirkjum á Skáni. Þarna er líka dansleiktæki nákvæmlega eins og það sem er í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, nema þetta í Malmö er bleikt en okkar er appelsínugult. Það eru líka ærslabelgir, ökuskóli, borðtennis, tveggja manna furðurólur, hjólabrettarampar og margt fleira skemmtilegt. Þetta var smá eins og ganga inn í frítt tívolí frekar en inn í almenningsgarð.

Næst var svo smá verlsunaferð í verslunarmiðstöð sem virtist ætla að vera óendanlega stór en Gunnjón keypti sér smá föt. Í verslunarmiðstöðinni ákváðum við líka næturstað. Við fundum ódýrt First Camp tjaldsvæði. Það er í meðalverði á tjaldsvæðum en er ódýrt á First Camp mælikvarða. 

Eftir verslunarmiðstöðina ákváðum við að skoða aðeins miðbæ Malmö og kíkja á ráðhúsið. Ráðhúsið er fallegt og gamalt og er við stórt torg.  Þó að dagurinn hafi byrjað grár og í rigningu hefur verið sól og blíða í Malmö í dag. Á torginu keyptum við okkur dýrindis ís með blóðappelsínugragði sem var mjög hressandi í hitanum. Eftir torgið var kominn tími til að sækja burra í bílastæðahúsið. Á leiðinni til baka gengum við í gegnum fínar göngugötur með verslunum, kaffihúsum og veitingastöðum. Við gerðum stutt stopp í Science fiction bokhandel sem er Nexus þeirra Svía. Gunnjón fór tómhentur út en ég féll fyrir sænsku skúrkaspili en í því á maður víst að fá útrás fyrir sinn innri skúrk. Þetta á víst að vera einfalt og skemmtilegt en við eigum eftir að prófa.

Nú sitjum við á tjaldsvæðinu í Sibbarp sem er í útjaðri Malmö. Þetta er hið fínasta tjaldsvæði. Hér er urmull af kanínum sem hoppa og skoppa út um allt. 

Leave a Reply

Discover more from Á ferð og flugi

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading