Það var rólegheitamorgun í Hverringe. Ég vaknaði snemma á meðan Gunnjón svaf lengur. Eftir tjaldpökkun og sturtu hittum við vingjarnlegan stóran og sætan hund sem var laus og vildi leika við okkur. Við höfðum því miður ekki tíma í leik en hefðum annars örugglega viljað leika við hann en við héldum á leið í bílinn.
Við gerðum svo sem ekki mikið í dag. Við skruppum til Flensborgar aðalega til að geta sagt að við hefðum komið til Þýskalands. Flensborg tók ekkert voðalega vel á móti okkur. Við vorum komin þarna til að sýna Burra heimaland hans en það var þrautin þyngri að finna bílastæði. Við vorum örugglega hátt í klukkutíma að finna stæði. Dagur B. ætti kannski líka að hugsa gang sinn varðandi aðþrenginu að einkabílnum þarna. Við fengum okkur Döner kebab í verslunarmiðstöð og röltum svo smá um bæinn. Ég hafði heyrt að Flensborg væri danskasti bær Þýskalands og bjóst þá kannski frekar við einhverju eins og Åbo/Turku í Finnlandi þar sem áhrif beggja tungumála voru áberandi. Mér fannst Flensborg ekki vera neitt sérstaklega dönsk. Mér fannst húsin og bærinn ekki líta neitt sérstaklega danskt út. Nánast ekkert var á dönsku og aðeins á tveimur skiltum sáum við texta bæði á þýsku og dönsku, á einu bílastæðahúsi og á einu safni. Þarna er dönsk ísbúð með dönskum ís en þar er allt á þýsku og starfsfólkið talar ekki dönsku. Þetta er annars ágætis bær, en smá subbulegur á köflum með jafnvel meira taggi og ljótu veggjakroti en í Reykjavík.
Tjaldsvæði dagsins er í Kruså í Danmörku rétt norðan við landamærin. Þetta er fínt Þjóðverjastæði. Við erum hér umkringd Hollendingum. Þetta er tjaldsvæði sem er ekki með númeruð hólfuð pláss heldur kemur fólk sér bara fyrir þar sem því sýnist svo framarlega sem þrír metrar séu á milli fólks. Þannig að reglulega keyra mistórir húsbílar um og væflast um í leit að stæði. Hér er sundlaug sem við fórum í áðan. Hún var sæmilega köld en ákaflega frískandi. Enn erum við laus við rigninguna. Það hafa bara komið nokkrir örskúrir.










Leave a Reply