Það rigndi talsvert á tjaldsvæðinu í gærkvöldi og í nótt en á einhverjum tímapunkti hefur stutt upp. Við vöknuðum í þvílíkri bongóblíða og við fengum að pakka eiginlega alveg þurru tjaldi. Ég gat svo setið úti í sólinni í seinasta skipti og drukkið morgunkaffið á meðan Gunnjón lúrði aðeins lengur.
Annars var þetta mikill akstursdagur. Við stoppuðum í hádegismat á Sunset Boulevard og héldum svo norður til Hanstholm. Aksturinn frá Jelling til Hanstholm með stoppi í mat í Vejle var um þrjár klukkustundir. Í Hanstholm kíktum við í kirkjugarðinn. Næst var ákveðið að halda til Hirtshals og byrja að drepa tímann þar. Þá þurftum við að finna eitthvað að gera þar sem gæti verið. Ég fann garð sem heitir Fun Park, það hljómaði eins og það gæti verið gaman. Aksturinn til Hirtshals var svo um tvær klukkustundir. Þegar við vorum komin í Fun Park var veðrið ennþá alveg ágætt. Sólin löngu farin en það var skýjað þannig að okkur þótti alveg í lagi að vera úti. Við völdum Fun Park því þar er opið til 20. Fun Park er lítill sveitagarður. Þetta er í raun dádýrabúgarður og er hægt að fara í smá dáfýrasafari. Við misstum því miður af síðustu safaríferð dagsins en seinni ferðir féllu niður því lestarstjórinn þurfti skyndilega að fara fyrr heim. Þarna eru þó allskonar önnur dýr sem við gátum skoðað. Við hittum, kalkúna, asna, lamadýr og geitur. Það voru skoskar kindur sem eru með fjögur horn. Þær voru mjög vinalegar og vildu mikið tala við okkur. Þær eiginlega eltu okkur á röndum, eða kannski voru þær að reyna að smala okkur. Þarna hittum við líka emúar með unga, refir, chinchilla nagdýr, degurottur og bjórar. Þarna eru líka ýmsir útileikir. Við reyndum fyrir okkur í skeifukasti, myllu og einhverskonar shuffli. Þegar við vorum búin að kíkja á dýrin og leika smá fór að rigna. Þá fór að verða minna gaman. Við hefðum örugglega verið mikið lengur ef verðið hefði verið betra.
Næst fengum við okkur kvöldmat á fínum veitingastað í Hirtshals, Normann’s. Þegar við gengum þar inn var það fyrsta sem þjónninn sagði við okkur að það væri smá bið eftir afgreiðslu. Það var meira en í góðu lagi fyrir okkur. Gunnjón fékk sér svo góðan hamborgara og ég fisk og franskar. Í eftirrétt fengum við svo belgíska vöfflu með ís, rjóma, súkkulaði og berjum.
Eftir matinn var klukkan um 21 og þá fórum við í innritunarröðina fyrir Norrænu. Í henni sitjum við enn þegar þetta er skrifað 22:28. Hér eigum við eftir svo að sitja í bílnum í um 4 klukkustundir, því Norræna er væntanleg í höfn klukkan eitt og við reiknum ekki með að geta farið um borð fyrr en um tvö.






















Leave a Reply