-
Continue reading →: Norðurlöndin: 42. stopp: Reykjavík / uppgjörNú erum við komin hringinn, heim til Reykjavíkur. Við ákváðum að bruna beint frá Egilsstöðum í gær og koma okkur heim. Í morgun fórum við svo og sóttum Melkorku á kattahótelið í Kattholti. Mikið er gott að vera búin að endurheimta kisu. Það versta við útilegur er alvarlegur kisuskortur. Melkorka…
-
Continue reading →: Norðurlöndin: 41. stopp: EgilsstaðirÞað eru búnir að vera frekar tíðindalitlir en afar langir dagar. Ég slæ því hér tveimur dögum saman. Það var talsverður öldugangur framan af í ferðinni og á miðvikudagsmorgun vaggaði skipið, en síðan lægði þegar við komum að Hjaltlandseyjum. Það reyndist hvorki þörf á að stoppa í Noregi eða Hjaltlandseyjum…
-
Continue reading →: Norðurlöndin: 40. stopp: NorrænaJæja. Norræna kom til Hirtshals rétt fyrir eitt í gærkvöldi. Við fengum að fara um borð í kringum klukkan tvö að dönskum tíma. Við þurftum að bíða fram á gangi i kannski hálftíma áður en búið var að þrífa öll herbergi. Þegar við komum í káetuna okkar fórum við beint…
-
Continue reading →: Norðurlöndin: 39. stopp: Hirtshals, eða hvað?Það rigndi talsvert á tjaldsvæðinu í gærkvöldi og í nótt en á einhverjum tímapunkti hefur stutt upp. Við vöknuðum í þvílíkri bongóblíða og við fengum að pakka eiginlega alveg þurru tjaldi. Ég gat svo setið úti í sólinni í seinasta skipti og drukkið morgunkaffið á meðan Gunnjón lúrði aðeins lengur.…
-
Continue reading →: Norðurlöndin: 38. stopp: JellingJæja, hvar skal byrja. Í gærkvöldi náði rigningin okkur. Við fengum því að pakka blautu tjaldi í morgun. Sem betur fer var bara léttur úði í morgun. Við vorum svosem búin að sjá í veðurspá að það ætti að rigna. Í gær þegar við vorum að finna okkur hluti til…
-
Continue reading →: Norðurlöndin: 37. stopp: KrusåÞað var rólegheitamorgun í Hverringe. Ég vaknaði snemma á meðan Gunnjón svaf lengur. Eftir tjaldpökkun og sturtu hittum við vingjarnlegan stóran og sætan hund sem var laus og vildi leika við okkur. Við höfðum því miður ekki tíma í leik en hefðum annars örugglega viljað leika við hann en við…
-
Continue reading →: Norðurlöndin: 36. stopp: Hverringe (aftur)Tiltölulega viðburðaríkur dagur. Í gær fengum við tjaldsvæði við tré. Að fá pláss við tré hefur kosti og galla. Gallar eru að stundum fara tjaldhælar og naglar í rætur á trjám og þá er mjög erfitt að ná þeim upp aftur. Annar galli er líka að maður er í skugga…
-
Continue reading →: Norðurlöndin: 35. stopp: SibbarpHvar skal byrja. Þetta var langur dagur. Við ákváðum að taka smá borgar dag og skoða Malmö betur. Tjaldsvæði gærdagsins var líka bara um 40 mínútur frá borginni. Við byrjuðum í Möllevången hverfinu. Við lögðum í bílastæðahús þar. Aðkoman í bílastæðahúsið var smá spes. Það er í kjallara og er…
-
Continue reading →: Norðurlöndin: 34. stopp: FalsterboNúna erum við smá farin að drepa tímann þar til tími er komin til að hitta Norrænu aftur í Hirtshals í næstu viku. Veðurspáin dregur mann líka smá niður. Það er spáð rigningu næstum alla dagana þar til við förum heim. Við getum þó varla kvartað eftir 4-5 vikur af…
-
Continue reading →: Norðurlöndin: 33. stopp: Mörrum (aftur)Tjaldsvæðið sem við vorum á var með öðruvísi fyrirkomulag en við erum vön hér á meginlandinu. Venjulega við komu á tjaldsvæði á maður að koma við í afgreiðslu og innrita sig inn á tjaldsvæðið, borga ef það hefur ekki verið gert á netinu og svo koma sér fyrir. Á þessu…