Á ferð og flugi

  • Hvað hlustum við á?
  • Myndir
  • I’ve been everywhere, man
  • Tjaldið
  • Sundlaugar
  • Tjaldsvæði
  • Eldri færslur
  • Norðurlönd, Tjaldsvæði

    Norðurlöndin: 23. stopp: Rossön

    Published by

    Úlfhildur Flosadóttir

    on

    18. júlí, 2025
    Norðurlöndin: 23. stopp: Rossön

    Við gerðum fátt í dag, við vöknuðum snemma í ógurlegum hita í tjaldinu og síðan keyrðum við. Það er nokkurnveginn allt. Við reyndar böduðum reyndar líka í morgun í tjörninni á tjaldsvæðinu til að kæla okkur niður áður en við héldum í bílferð. Hér koma smá, jafnvel samhengislausar, pælingar um…

    Continue reading →: Norðurlöndin: 23. stopp: Rossön
  • Norðurlönd

    Norðurlöndin: 22. stopp: Gielas / Arvidsjaur

    Published by

    Úlfhildur Flosadóttir

    on

    17. júlí, 2025
    Norðurlöndin: 22. stopp: Gielas / Arvidsjaur

    Við fengum aftur tjaldsvæði i skugga sem gerir örlítið svalara, eða minna heitt öllu heldur í tjaldinu. Við höfum greinilega bæði verið þreytt eftir langan akstursdag í gær því við sváfum bæði út. Ég svaf til um klukkan níu og Gunnjón eitthvað síðar. Þetta var letimorgun í rólegheitum við tjaldið…

    Continue reading →: Norðurlöndin: 22. stopp: Gielas / Arvidsjaur
  • Norðurlönd

    Norðurlöndin: 21. stopp: Selholmen

    Published by

    Úlfhildur Flosadóttir

    on

    16. júlí, 2025
    Norðurlöndin: 21. stopp: Selholmen

    Tjaldsvæði gærdagsins hefur kosti og galla. Þessi möguleiki á tvíbókun er vissulega galli, en það varð til þess að við fengum pláss á skuggsælum stað á bakvið hús og í skugga trjáa og því var bara heitt en ekki sjóðandi heitt í tjaldinu í morgunsárið. Galli við stæðið sem við…

    Continue reading →: Norðurlöndin: 21. stopp: Selholmen
  • Norðurlönd

    Norðurlöndin: 20. stopp: Vallen

    Published by

    Úlfhildur Flosadóttir

    on

    15. júlí, 2025
    Norðurlöndin: 20. stopp: Vallen

    Við áttum rólegan morgun. Við fórum eftir fyrirmælum hótelstarfsmannsins í gær og sváfum út og urðum því ekkert vör við stóra túristahópinn í morgunmatnum.  Við fengum að vanda dýrindis morgunmat á hótelinu, þar sem er til allt mögulegt án laktósa. Eftir morgunmatinn gerðum við svo aðra atlögu að safninu frá…

    Continue reading →: Norðurlöndin: 20. stopp: Vallen
  • Á ferð um landið

    Norðurlöndin: 19. stopp: Umeå

    Published by

    Úlfhildur Flosadóttir

    on

    14. júlí, 2025
    Norðurlöndin: 19. stopp: Umeå

    Við vöknuðum eldsnemma í steikjandi hita og sorpilm á First Camp Umeå. Úlfhildur vaknaði talsvert á undan mér og setti gamla Primus brennara pabba síns á nýjan gasdunk. Úlfhildur hefur verið frekar kaffilaus undanfarið því gamli brennarinn virkar bara með smærri dunkum og síðast þegar við keyptum nýjan fyrir grillið…

    Continue reading →: Norðurlöndin: 19. stopp: Umeå
  • Norðurlönd

    Norðurlöndin: 18. stopp: Nydala / First Camp Umeå

    Published by

    Úlfhildur Flosadóttir

    on

    13. júlí, 2025
    Norðurlöndin: 18. stopp: Nydala / First Camp Umeå

    Það er ekki svo viðburðaríkur dagur í dag. Ég held ég hafi sjaldan verið jafn sveitt á ævinni og í dag. Það var strax orðið svo heitt í morgun að maður varð kófsveittur bara við það að sitja úti. Ég var rétt svo í föstum fasa eftir að hafa setið…

    Continue reading →: Norðurlöndin: 18. stopp: Nydala / First Camp Umeå
  • Norðurlönd

    Norðurlöndin: 17. stopp: Överhörnäs/Örnsköldsvik

    Published by

    Úlfhildur Flosadóttir

    on

    12. júlí, 2025
    Norðurlöndin: 17. stopp: Överhörnäs/Örnsköldsvik

    Annar rólegur dagur í dag. Við byrjuðum á afslappi í sólinni á tjaldsvæðinu. Annars vorum við á nornaslóðum í dag. Við byrjuðum á að fara á Nornasafnið í Prästmon. Þar er farið yfir sögu nornaofsókna og réttarhalda og norna- og galdrabrenna í Thorsåkerssókn árin 1674-75 en þá voru um 70…

    Continue reading →: Norðurlöndin: 17. stopp: Överhörnäs/Örnsköldsvik
  • Norðurlönd

    Norðurlöndin: 16. stopp: Sollefteå

    Published by

    Gunnjón Gestsson

    on

    11. júlí, 2025
    Norðurlöndin: 16. stopp: Sollefteå

    Letidagurinn sem átti að vera í gær var frekar í dag þar sem við fórum einungis á eitt (1) safn og stoppuðum bara í um tvo og hálfan tíma. Umrætt safn er í menningarmiðstöð Sundsvall bæjar í Medelpad héraði sem er hluti af norðurlandi Svíþjóðar en er í raun eiginlega…

    Continue reading →: Norðurlöndin: 16. stopp: Sollefteå
  • Norðurlönd

    Norðurlöndin: 15. stopp: Mellanfjärden

    Published by

    Úlfhildur Flosadóttir

    on

    10. júlí, 2025
    Norðurlöndin: 15. stopp: Mellanfjärden

    Dagurinn byrjaði í leti og rólegheitum. Sólin skein skært og var sólbað og morgunmatur fyrir hádegi áður en tjaldinu var pakkað, nú loksins þurru. Ætlunin var að hafa algjöran letidag, pakka saman, keyra svo á annað tjaldsvæði og hanga svo í sólinni, lesa, spila, bara almennt hangs. Það fór þó…

    Continue reading →: Norðurlöndin: 15. stopp: Mellanfjärden
  • Norðurlönd

    Norðurlöndin: 14. stopp: Långnäs

    Published by

    Úlfhildur Flosadóttir

    on

    9. júlí, 2025
    Norðurlöndin: 14. stopp: Långnäs

    Við vöknuðum fyrir allar aldir í morgun eða klukkan fimm að sænskum tíma, sex að finnskum. Við fengum okkur morgunmat og fylgdumst með innsiglingunni inn í Stokkhólmshöfn. Að því loknu var komið að því að fara niður á bíladekk og fara í bílinn. Í gær þegar við fórum um borð…

    Continue reading →: Norðurlöndin: 14. stopp: Långnäs
Previous Page Next Page

Á ferð og flugi

  • Instagram
  • Hvað hlustum við á?
  • Myndir
  • I’ve been everywhere, man
  • Tjaldið
  • Sundlaugar
  • Tjaldsvæði
  • Eldri færslur

Designed with WordPress

 

Loading Comments...
 

    Notifications